Kröfubunki
Til að stofna nýjan kröfubunka þarf notandi að fylla inn eftirfarandi reiti á flipanum "Kröfubunki".

Flipi - Almennt
| Reitur | Lýsing |
|---|---|
| Nr. | Númer bunka kemur sjálfkrafa inn út frá númeraseríu sem valin var í spjaldinu Stillingar - Kröfur. |
| Lýsing | Frjáls lýsing fyrir bunka, fyllt af notanda sem stofnar bunka. |
| Innheimtuaðili | Bankareikningur sem valinn var fyrir bunka. Kröfur verða stofnaðar fyrir þennan bankareikning. |
| Hlutagreiðsla leyfileg | Býður upp á að stilla handvirkt hvort hlutagreiðslur séu leyfilegar fyrir þennan bunka eða ekki. Ef hlutagreiðsla er almennt leyfileg skv. Stillingar - Kröfur þá erfist þetta hak þaðan. Ef gildinu er breytt breytist samnefnt gildi á öllum kröfum, en það er gildið á kröfunni sjálfri sem er svo sent til bankans. |
| Stofnað | Fyllist sjálfkrafa með dagsetningu og tíma sem kröfubunki var stofnaður. |
| Stofnað af | Fyllist sjálfkrafa með kenni notanda sem stofnar kröfubunka. |
| Allir reikningar sendir í bankann | Gildið í reitnum er Já ef engar kröfulínur með fylgiskjal af gerð reikningur eða kreditreikningur finnast í bunkanum sem hafi reitinn Reikningur sendur sem Nei. Ef ýtt er á gildið í reitnum opnast loggur tilrauna til sendinga kröfureikninga afmarkaður á bunkann. |
| Lokaður | Hægt er að haka í þennan reit ef má ekki mynda frekari kröfur á þennan kröfubunka. Gott er að hafa reglu á myndun kröfubunka, t.d. fyrir tímabil eða hvern viðskiptavin. |
Upplýsingakassi - Upplýsingar um keyrslu
| Reitur | Lýsing |
|---|---|
| Upphæð | Heildarupphæð krafna sem eru í kröfubunka. |
| Greidd upphæð | Greidd upphæð af kröfum sem eru í kröfubunka. |
| Fjöldi krafa | Fjöldi krafa í kröfubunka. |
| Greitt % | Sýnir hlutfall á milli greidd upphæð og upphæð krafna. Þegar greitt % er komin í 100%, er kröfubunki að fullu greiddur. |
Aðgerðir á kröfubunka
Aðgerðirnar eru útskýrðar í textanum fyrir neðan, en hér er tafla yfir helstu aðgerðir:
| Aðgerð | Lýsing |
|---|---|
| Mynda kröfur | Myndar kröfur skv. afmörkun í kröfubunka. Sjá nánari lýsingu hér. |
| Aðgerðatillögur á kröfubunka | Keyrir á allar kröfur innan kröfubunka og leggur til aðgerðir á kröfu. Sjá nánari lýsingu hér. |
| Framkvæma aðgerðir | Framkvæmir aðgerðir á kröfu sem eru í reitnum "Aðgerð". Sjá nánari lýsingu hér. |
| Lesa kröfur frá banka | Sækir opnar kröfur frá banka inn í kröfubunka. Sjá nánari lýsing hér. |
| Athuga stöðu kröfubunka | Athugar stöðu kröfubunka í banka þannig að staða krafna uppfærist skv. stöðu í banka. |
| Sækja kröfustöðu | Sækir kröfustöðu í banka á öllum opnum kröfum í kröfubunka. Sjá nánari lýsingu hér. |
| Stofna í milliinnheimtu | Er tengt Mótus kerfinu. |
| Uppfæra valda kröfu | Uppfærir valda kröfu skv. eftirstöðvum viðskiptamannafærslu. Sjá nánari lýsingu hér. |
| Fella niður valda kröfu | Merkja valda kröfu við aðgerðina "Fella niður". Sjá nánari lýsingu hér. |
| Hætta við valda aðgerð | Hreinsar reitinn "Aðgerð á alla kröfur" í kröfubunka. Sjá nánari lýsingu hér. |
| Prenta greiðsluseðla | Prentar alla greiðsluseðla í kröfubunka. |
| Skipta bunka | Ef fjöldi krafa í bunkanum eru fleiri en leyfilegt er er hægt að keyra þessa aðgerð til að skipta bunkanum niður. Flýtileið fyrir aðgerðina er Ctrl + Shift + S. |
| Dreifa kröfu | Hægt er að skipta einni kröfu upp í margar kröfur. sjá Nánari lýsingu hér |