Kröfubunkar
Undir RdN Kröfubunkar opnast listi yfir kröfubunka í kerfinu.

Upplýsingar
| Reitur | Lýsing |
|---|---|
| Nr. | Númer bunkans kemur sjálfkrafa inn út frá númeraseríu sem valin var í spjaldinu Stillingar - Kröfur. |
| Lýsing | Frjáls lýsing fyrir bunka, fyllt af notanda sem stofnar bunka. |
| Innheimtuaðili | Bankareikningur sem valinn var fyrir bunka. Kröfur verða stofnaðar fyrir þennan bankareikning. |
| Stofnað | Dagsetning og tími sem bunki var stofnaður. |
| Stofnað af | Notandakenni sem stofnaði bunka. |
| Upphæð | Heildarupphæð kröfubunka. |
| Greidd upphæð | Staða greiðslna í kröfubunka (heildarupphæð greidd). |
| Sía | Segir til um hvernig kröfubunki var myndaður (afmarkanir sem voru notaðar). |
Með því að velja "Skoða" eða "Breyta" opnast kröfubunki. Sjá nánari lýsingu hér