Launakerfisgrunnur
Uppsetning
Til að fá inn gögn og grunnstillingar er farið í Aðgerðir -> Uppsetningargögn
Launakerfisgrunnur
Gluggi fyrir grunnuppsetningarskrá launakerfis.

Almennt
| Reitur | Lýsing |
|---|---|
| Númeraröð útborgunar | Númeraröð útborgunnar, td. Ú22-00001 |
| Launaseðill | Ef búið er að aðlaga skýrslu fyrir prentun á launaseðlum má tilgreina skýrslunúmer hér |
| Kjarasamningur virkur | Ef nota á kjarasamninga í kerfinu |
| Tegund launareiknings | Reikningur notaður fyrir bókun launa í fjárhag. Möguleikar eru Fjárhagslykill, Banki, Viðskiptamaður og Lánardrottinn |
| Launareikningur | Bankareikningur fyrir greiðslu launa ef tegund er bankareikningur. Annars fjárhagslykill eða viðskiptamaður eða lánardrottinn |
| Sjálfvirk stofnun launaseðla | Haka á í þennan reit ef stofna á launaseðla strax og útborgun er stofnuð. Hentar minni fyrirtækjum þar sem allir eru með föst laun |
| Ítarlegir launaseðlar | Stýrir hvort launaseðlar dragast saman per launalið eða hvort launaseðlar séu sundurliðaðir |
| Útgerð | Ef hak er sett í þennan reit, þá virkjast viðbótar valliðir í kerfinu vegna sjómannalaun |
Tímaskráning
| Reitur | Lýsing |
|---|---|
| Tímaskráning notar verk/verkhluta | Hakað er í þennan reit ef skrá á vinnu á verk og verkhluta |
| Tímaskr. Sækja launalið starfsm. | Hakað er í þennan reit ef sækja á inn launaliði á starfsmanni |
| Launaliðir fyrir tímaskráningu | Fjöldi launaliða sem eru sóttir úr tímaskráningu |
| Fjöldi klst í vinnudegi | Þessi reitur tilgreinir fjölda klukkustunda í heilum vinnudegi |
| Staðfesta netföng launaseðla | Hakað er í þennan reit ef á að staðfest að netföng launaseðla séu gild |
| Útborgun upphafsdags. mánaðar | Hvaða dag nýtt launatímabil mánaðar á að byrja. Kerfið reiknar með að launatímabil sé 1 mánuður þannig ef það skildi byrja 21 hvers mánaðar þá endar það 20. þann næsta |
| Útborgun dags.formúla | Formúla yfir hvernig skal reikna launatímabil. Ef reitur er auður þá er launatímabilið skilgreint sem einn mánuður |
Uppsetning launaliða
| Reitur | Lýsing |
|---|---|
| Launaliður persónuafsláttar | Launaliður fyrir persónuafslátt |
| Maki launaliður persónuafsláttar | Launaliður fyrir persónuafslátt maka |
| Launaliður tryggingagjald | Launaliður fyrir tryggingagjald |
| Launaliður lífeyrissjóðs | Launaliður fyrir lífeyrissjóð |
| Viðb. lífeyrissjóðs launaliður | Launaliður fyrir viðbótarlífeyrissparnað |
| Launaliður Orlof dagvinnu | Launaliður fyrir orlof á dagvinnu |
| Launaliður Orlof yfirvinnu | Launaliður fyrir orlof á yfirvinnu |
| Launaliður greidda orlofa | Launaliður fyrir greidda orlofa |
| Launaliður bifreiðahlunninda | Launaliður bifreiðahlunninda |
Starfsmannaupplýsingar

| Reitur | Lýsing |
|---|---|
| Stofna orlofsfærslur | Hakað er í þennan reit ef það eiga að stofnast færslur eða hreyfingar á orlofi. Söfnun út frá skráðri vinnu á forsendum launaseðils. Notkun út frá tímaskráningu á verkhluta |
| Orlofssöfnun Launaliður | Tilgreinir launaliðinn sem notaður er á launaseðli til þess að birta uppsafnað orlof |
| Orlofssöfnun laust til notkunar launaliður | Tilgreinir launaliðinn sem er notaður á launaseðli til þess að birta orlof sem laust er til notkunar |
| Orlofsverknr. | Tilgreinir verkið sem inniheldur verkliðinn fyrir skráningu á notkun uppsafnaðs orlofs |
| Orlof verkhluti nr. | Tilgreinir verkliðinn sem notkun orlofs er skráð á |
| Aðrir verkhlutar orlofs | Tilgreinir fjölda verkhluta sem tengdir eru við orlof. Hægt er að smella á töluna til þess að sjá þá verkhluta og/eða stofna fleiri |
| Orlof á launaseðli | Hakað er í þennan reit ef birta á upplýsingar um stöðu orlofs á launaseðli |
| Reikna orlofsskuld | Ef órskað er eftir yfirliti yfir þá skuld sem fyrirtækið hefu gagnvart einstaklingum nýti þeir ekki uppsafnað orlof |
| Yfirskrifa orlofstexta á launaseðli | Ef óskað er eftir fleiri orlofsupplýsingum á launaseðli er hægt að haka í þennan reit og fylla út í svæðið neðst hvernig upplýsingarnar skulu birtast á launaseðli. Algengast er eftirfarandi: Orlof safnað á orlofsári: %2, Orlof safnað í mánuðinum: %3, Orlof notað í mánuðinum: %4, Orlof laust til notkunar: %1 |
| Stofna veikindafærslur | Hakað er í þennan reit ef stofna á færslur eða hreyfingar um stöðu veikinda |
| Veikindi verknr. | Tilgreinir verkið sem inniheldur verkliðinn sem veikindi eru skráð á |
| Veikindi verkhluti nr. | Tilgreinir verkliðinn sem veikindi eru skráð á |
| Aðrir verkhlutar veikinda | Tilgreinir fjölda verkhluta sem tengdir eru við veikindi. Hægt er að smella á töluna til þess að sjá þá verkhluta og/eða stofna fleiri |
| Færslur f. Styttingu Vinnuvikunnar | Hakað er í þennan reit ef það eiga að stofnast færslur eða hreyfingar fyrir styttingu vinnuvikunnar. Söfnun út frá skráðri vinnu á forsendum launaseðils. Notkun út frá tímaskráningu á verkhluta |
| Stytting vinnuvikunnar á launaseðli | Hakað er í þennan reit ef birta á upplýsingar um stöðu styttingu vinnuvikunnar á launaseðli |
| Uppsöfnuð stytting vinnuvikunnar rennur út | Tilgreinir hvenær uppsöfnuð stytting vinnuvikunnar rennur út. Notað við reikning á stöðu styttingu vinnuvikunnar. Ef valið er Árlega er bara litið á færslur frá 1. jan. Ef valið er mánaðarlega er eingöngu litið á færslur þessa mánaðar |
| Söfnun styttingu vinnuvikunnar á dag. | Tilgreinir hversu margar klst eru safnaðar á hvern heila vinnudag |
| Stytting vinnuvikunnar verknr. | Tilgreinir verkið sem inniheldur verkliðinn fyrir skráningu á notkun styttingu vinnuvikunnar |
| Stytting vinnuvikunnar verkhluti nr. | Tilgreinir verkliðinn sem notkun styttingu vinnuvikunnar er skráð á |
| Aðrir verkhlutar styttingu vinnuvikunnar | Tilgreinir fjölda verkhluta sem tengdir eru við styttingu vinnuvikunnar. Hægt er að smella á töluna til þess að sjá þá verkhluta og/eða stofna fleiri |
| Stytting vinnuvikunnar launaliður | Tilgreinir launaliðinn sem er notaður á launaseðli til þess að birta styttingu vinnuvikunnar sem laust er til notkunar |
RSK
| Reitur | Lýsing |
|---|---|
| RSK veflykill | Veflykill fyrir samskipti við RSK |
| RSK samskipti prófun | Hvort samskipti við RSK séu í prófun (á ekki að vera virkt venjulega) |
| Tegund greiðslureiknings | Tegund greiðslureiknings vegna staðgreiðslu og tryggingagjalds – fjárhagur / bankareikningur / viðskiptamaður / lánardrottinn |
| Skattstofa | Númer fjárhagsreiknings vegna staðgreiðslu og tryggingagjalds. Bankareikningur ef tegund er bankareikningur. Annars viðskiptamaður eða lánardrottinn |
| Tölvupóstur launagr. | Netfang launafulltrúa vegna kvittana frá RSK eftir vefskil |
| RSK villuathugun | Eru RSK samskipti í villuleit (á ekki að vera virkt venjulega) |
| RSK tölvupóstur | Netfang vegna eftirágreiddra skatta þar sem ekki er notað vefþjónustu í þessari virkni (vanalega tbrkrafa@runuvinnsla.is) |
| RSK launaliður frádráttar | Launaliður vegna eftirágreiddra skatta |
| RSK kóti kröfuaðila | Kröfuaðili vegna eftirágreiddra skatta |
Sjálfgildi
Viðskiptamaður stofnaður út frá starfsmanni
| Reitur | Lýsing |
|---|---|
| Sjálfgefinn bókunarflokkur viðskm. | Sjálfgefinn bókunarflokkur viðskiptamanns þegar starfsmaður er stofnaður sem viðskiptamaður |
| Sjálfgefinn alm. viðsk. bókunarflokkur | Sjálfgefinn alm. viðsk. bókunarflokkur þegar starfsmaður er stofnaður sem viðskiptamaður |
| Sjálfg. VSK-viðsk.bókunarfl. | Sjálfgefinn VSK-viðsk.bókunarfl. þegar starfsmaður er stofnaður sem viðskiptamaður |
| Sjálfgefinn bókunarflokkur lánardr. | Sjálfgefinn bókunarflokkur lánardrottins þegar starfsmaður er stofnaður sem lánardrottinn |
Forði stofnaður út frá starfsmanni
| Reitur | Lýsing |
|---|---|
| Sjálfgefin grunmælieining forða | Sjálfgefin grunnmælieining forða þegar starfsmaður er stofnaður sem forði |

Bókun
| Reitur | Lýsing |
|---|---|
| Sjálfvirk fjárhagsbókun | Þegar útborgun er bókuð – bóka beint í fjárhag – annars stoppar útborgun í færslubók |
| Upprunakóti | Merkja fjárhagsfærslur með upprunakóta |
| Heiti bókarsniðmáts | Ef sjálfvirk bókun er ekki virk – færslubók – sniðmát sem færslubók stoppar í |
| Heiti bókarkeyrslu | Ef sjálfvirk bókun er ekki virk – færslubók – bókarkeyrsla sem færslubók stoppar í |
| Bókunartexti | Bókunartexti á launafærslum %1 er heitið á útborguninni |
| Víddarbókun | Nota Víddaskiptingu launa |
| Útborgun bókunarlínu vörpun | Stillingar þegar kemur að stofnun bókunarlína m.a. fyrir hvort deildir eigi að fara á bókunarlínur |
Kjararannsókn sveitarfélaga
| Reitur | Lýsing |
|---|---|
| Kjararannsókn sveitarfélaga | Númer fyrirtækisins fyrir kjararannsókn |
Banki
| Reitur | Lýsing |
|---|---|
| Stillingar banka | Stilla þarf hvaða útgreiðslubók er notuð og mótreikning launa ef nota á Bankakerfi RdN til að borga beint úr BC |
| Launaseðlar í banka | |
| Bankareikningsnr. | Tilgreinir bankareikninginn sem á að nota til að tengjast bankanum þegar launaseðlar eru sendir |
| Nota XML launaseðla | Ef hakað er í þennan reit er eldri virkni kerfisins til að framkalla launaseðla notuð en hún reiðir sig á stílsnið sem skráð er hjá RB og sendir seðlana í samsvarandi XML. Sterklega er mælt með því að haka ekki við þennan reit fyrir nýja notendur en þá eru launaseðlar útbúnir út frá BC skýrslu og sendir í formi PDF |
| Launaseðill | Einungis sýnilegur ef ekki er hakað í Nota XML launaseðla. Inniheldur sama gildi og Launaseðill undir "Almennt" að ofan. Reiturinn stýrir því hvaða skýrsla er notuð til að búa til launaseðla sem sendir verða til bankans í formi PDF skjala |
| Hlaða niður sendum launaseðlum | Einungis sýnilegur ef ekki er hakað í Nota XML launaseðla. Tilgreinir hvort einnig eigi að hlaða niður launaseðlum sem sendir voru til bankans í zip skrá |
| Hámarks bunkastærð launaseðla | Tilgreinir hámarksfjölda af launaseðlum í hverri zip skrá sem send er til banka. Ef gildið er 0 hér er notast við sjálfgefna gildið 50 |
| Yfirskrifa kt. endingu launaseðla | Hægt að nota þennan reit til að stilla kennitöluendingu í skráarnafni. Þess gæti þurft ef Reiknistofa Bankanna biður um sérstaka endingu á eftir kt. í skráarnafni, t.d. 1234567890LL_dagsetning_nrsendingar þar sem "Yfirskrifa kt. endingu launaseðla" væri þá "LL" í því tilfelli |
| XSL nafn launaseðla | Einungis sýnilegur ef hakað er í Nota XML launaseðla. Geymir heitið á stílsniðinu sem samsvarar XML launaseðlunum sem sendir eru til bankanna |
Aðgerðir
| Aðgerð | Lýsing |
|---|---|
| Uppfæra stéttarfélög og sjóði | Tengir kerfið við skilagrein.is og sækir/uppfærir lífeyrissjóði, stéttarfélög og innheimtuaðila |