Hoppa yfir í efnið

Aðstoð með uppsetningu

Opnið Launakerfi uppsetning með aðstoð.

alt text

Skref Lýsing
Lesa inn gögn Til að halda áfram þarf kerfið að sækja og lesa inn stofngögn. Veljið lesa inn gögn til að halda áfram.
Launareikningur Hér þarf að stofna launareikning. Kerfið býr sjálkrafa til Númeraröð útborgunar.
Tímaskráningarkerfi Veljið hvort þið skráið vinnu á verk og verkhluta.
Starfsmannaupplýsingar Tilgreinið hvort þið viljið stofna eftirfarandi:
Orlof Hakað er í þennan reit ef það eiga að stofnast færslur eða hreyfingar á orlofi. Söfnun út frá skráðri vinnu á forsendum launaseðils. Notkun út frá tímaskráningu á verkhluta.
Veikindi Hakað er í þennan reit ef stofna á færslur eða hreyfingar um stöðu veikinda.
Stytting vinnuviku Hakað er í þennan reit ef það eiga að stofnast færslur eða hreyfingar fyrir styttingu vinnuvikunnar. Söfnun út frá skráðri vinnu á forsendum launaseðils. Notkun út frá tímaskráningu á verkhluta.
Orlof (sérsíða) Sýnd ef notandi hakar við að stofna orlofsfærslur. Kerfi sér um að búa til launaliði fyrir orlofssöfnun. Veljið hvort þið viljið sýna orlof á launaseðli og hvort þið viljið halda utan um orlofsskuld ef starfsmaður tekur of langt orlof. Ef fyrirtæki skráir vinnu á verk og verkhluta þarf að velja orlofsverk nr. verkhluta nr.
Veikindi (sérsíða) Sýnd ef notandi hakar við að stofna veikindafærslur. Ef fyrirtæki skráir vinnu á verk og verkhluta þarf að velja orlofsverk nr. verkhluta nr. Ef notandi notast ekki við verk/verkhluta þarf ekkert að sérstilla hér.
Stytting vinnuvikunnar (sérsíða) Sýnd ef notandi hakar við að halda utan um styttingu vinnuviku. Kerfi sér um að stofna launaliði fyrir styttingu vinnuviku. Veljið hversu mikil stytting safnast á dag. 0.15 þýðir t.d. 15% af 60 mín = 9 mín.
RSK Setjið inn veflykil og ykkar tölvupóstfang. Kerfið setur sjálfkrafa inn tölvupóstfang ríkisskattstjóra, launalið frádráttar og kóta kröfuaðila.
Víddarbókun Tilgreina hvort nota eigi víddarskiptingu launa. Ef hakað er við víddarbókun birtist tafla til að setja upp víddir.
Banki Stilla þarf hvaða útgreiðslubók er notuð og mótreikning launa ef nota á Bankakerfi RdN til að borga beint úr BC
Aðgangur að launakerfi Stilla þarf upp hverjir hafa aðgang að launakerfi fyrirtækisins. Ef hakað er við að bara aðilinn sem stillir upp kerfinu þurfi aðgang verður hann sjálfkrafa setur inn sem notandi og næstu síðu verður sleppt
Aðgangsstýring Setja inn alla notendur sem þurfa aðgang að kerfi.
Samantekt Sýnir samantekt yfir uppsetningu. Veljið ljúka þegar allt er klárt.