Bókun orlofsskuldbindingar
Kerfið býður upp á að halda utan um virði orlofs sem launagreiðandi skuldar starfsmönnum í bókhaldinu — svokallaða orlofsskuldbindingu.
Kveikja á virkni
Til að kveikja á bókun á virði orlofsskuldbindingar er farið í Launakerfisgrunnur (í Stikurönd: Launakerfi -> Uppsetning -> Launakerfisgrunnur) og hakað við Bókun orlofsskuldbindingar virk.

Ef hún er virk mun virði orlofsskuldbindingar vera bætt við launaseðla sem upplýsingalínur (ekki sýnilegt á launaseðli sem sendur er til starfsmanna) og bókuð með útborgun skv. bókunarstillingum launaliðs og kröfuaðila sem skilgreindir eru í reitunum tveimur fyrir neðan hakið.
Þegar hakað er við reitinn birtist eftirfarandi gluggi sem býður upp á að opna uppsetningarsíðu sem auðveldar uppsetninguna á launaliðnum og kröfuaðilanum. Uppsetningarsíðan er einnig aðgengileg í gegnum Launakerfi -> Uppsetning -> Bókunarstillingar orlofsskuldbindingar.

Á síðunni sem opnast er mælt með að smella á Stofna launalið og kröfuaðila sjálfvirkt. Við það myndast launaliður og kröfuaðili sem hægt er að hengja bókunarlykil og mótbókunarlykil við.

Einnig býður kerfið upp á að núlla bókhaldslykil með nýrri færslu ef hann inniheldur orlofsskuldbindingu frá fyrra kerfi sem er þá framkvæmd í fyrstu útborgun eftir að virknin er virkjuð. Mælt er með því til að hann hafi rétta stöðu þegar virknin er tekin í notkun.
Þegar ýtt er á Áfram birtist listi þar sem hægt er að velja launaliði sem notaðir verða til að búa til grunnupphæðina sem er notuð til að reikna orlofsskuldbindinguna. Fjölda orlofstíma er deilt með fjölda vinnuklukkustunda í mánuði og margfaldað með þessu gildi til að reikna út virði orlofsins sem starfsmaður á inni.
Ath. að við útreikninginn er notast við uppsetningu launaliða og kröfuaðila (Taxta og prósentur) en ekki upphæðir á launaseðlinum. Þetta er til að minnkað starfshlutfall t.d. vegna fæðingarorlofs eða annarra þátta hafi ekki áhrif á grunninn sem er notaður til að reikna orlofsvirðið.

Dæmi um uppsetningu:
Hakað við mánaðarlaun:
- 100 - Mánaðarlaun
Hakað við launatengd gjöld:
- 200 - Mótframlag í lífeyrissjóð
- 202 - Mótframlag í viðbótarlífeyrissjóð
- 350 - Tryggingagjald
- 412 - Mótframlag í stéttarfélag
- 414 - Mótframlag í orlofssjóð
- 416 - Mótframlag í endurhæfingarsjóð
- 418 - Mótframlag í menntunarsjóð
Afstemming
Á launaseðli má sjá línurnar sem verða bókaðar við bókun útborgunar en einnig hvernig þær eru reiknaðar með því að smella á "i" takkann uppi hægra megin til að opna staðreyndakassann Bókun orlofsskuldbindingar. Hann sýnir niðurbrot á því hvernig orlofsskuldbindingin er reiknuð fyrir tiltekinn starfsmann. Einnig má í boxinu nálgast stillingar fyrir bókun orlofsskuldbindingar (einnig aðgengilegt í gegnum Uppsetning -> Bókunarstillingar orlofsskuldbindingar)

Bókaðar færslur
Á síðunni Orlof og veikindi -> Stöður orlofs má sjá stöðu bókaðrar orlofsskuldar fyrir alla starfsmenn í þess til gerðum reit, og færslurnar á bak við gildin ef ýtt er á þau, sem má svo breyta ef þörf er á. Færslurnar verða til við bókun útborgunar. Þessar færslur eru svo notaðar þegar kerfið ákvarðar upphæð bakfærslu orlofsskuldbindingar fyrir einstaka starfsmenn þegar nýtt gildi er bókað. Hægt er að sía þessar færslur með reitnum Dags til.
