Tölvupóstur
Þessi síða er fyrir kerfisstjóra og lýsir því hvernig Samþykktakerfi sendir tölvupóst um samþykktarbeiðnir, samþykktir og hafnanir.
Tilgangur
Samþykktakerfi getur sent samþykkjanda tölvupóst þegar hann fær samþykktarbeiðni, og þeim sem sendi beiðnina þegar hún er samþykkt eða henni hafnað. Í vinnsluröð er líka hægt að senda hverjum samþykkjanda einn safnpóst með öllum opnum beiðnum og áminningu um beiðnir sem eru komnar fram yfir gjalddaga.
Forsendur
- Tölvupóstsreikningur er til í Business Central.
- Hver viðtakandi hefur netfang í Notandauppsetning. Notandi án netfangs fær ekki póst.
Heimildir
Notandinn þarf heimildasafnið RDN APPR. ADMIN og heimild til að breyta tölvupóstsreikningum.
Skref
Tengja tölvupóstsreikning
Samþykktakerfi sendir póst með aðstæðunum RdN Tölvupóstur samþykkta. Þær þarf að tengja tölvupóstsreikningi.
-
Leitaðu að Úthlutun á aðstæðum tölvupósts og opnaðu síðuna.

-
Veldu reikninginn sem á að senda póstinn og veldu Úthluta aðstæðum.
-
Veldu RdN Tölvupóstur samþykkta og staðfestu.

-
Athugaðu að aðstæðurnar standi undir réttum reikningi.

Stilla hvenær póstur er sendur
Opnaðu Stillingar samþykkta. Flokkurinn Email stjórnar póstinum.

| Reitur | Áhrif |
|---|---|
| Tungumál tölvupósts | Íslenska, Enska eða Stillingar viðtakanda. Síðasti kosturinn notar tungumál hvers viðtakanda úr sérstillingum notanda. |
| Senda tölvupóst við samþykktarbeiðni | Samþykkjandinn fær póst þegar beiðni berst honum. |
| Senda tölvupóst við samþykkt | Sá sem sendi beiðnina fær póst þegar hún er samþykkt. |
| Senda tölvupóst við höfnun | Sá sem sendi beiðnina fær póst þegar henni er hafnað, með nafni þess sem hafnaði og athugasemd. |
Póstur um eitt skjal sýnir númer, lánardrottin, lýsingu, upphæð og eindaga og hnapp sem opnar skjalið. Beiðnir og áminningar opna skjalið á Samþykktavefnum, en póstur um samþykkt eða höfnun opnar það í Business Central. Hvaða slóð er notuð fyrir vefinn er lýst á síðunni Samþykktavefur.
Safnpóstur í vinnsluröð
Ef samþykkjendur eiga frekar að fá einn póst á dag en einn fyrir hverja beiðni, stofnaðu vinnsluraðarfærslu fyrir kótaeininguna 10041617 RdN Approval Batch Email. Hún sendir hverjum samþykkjanda einn póst með öllum opnum beiðnum hans fyrir innkaupaskjöl. Þá er yfirleitt tekið hak af Senda tölvupóst við samþykktarbeiðni svo að samþykkjendur fái ekki bæði.

Áminningar í vinnsluröð
Kótaeiningin 10041616 RdN Overdue Approval Entrie AS sendir hverjum samþykkjanda áminningu um beiðnir vegna innkaupaskjala sem hafa eindaga fyrir daginn í dag. Hún tekur með bæði nýstofnaðar og opnar beiðnir, svo áminning getur borist áður en röðin kemur að samþykkjandanum. Beiðnir með eindaga í dag eru ekki komnar fram yfir eindaga. Stofnaðu vinnsluraðarfærslu fyrir hana á sama hátt.
Dæmi
Dæmi ehf. tengir reikninginn samthykktir@daemi.is við RdN Tölvupóstur samþykkta, velur Stillingar viðtakanda og hakar í Senda tölvupóst við samþykkt og Senda tölvupóst við höfnun. Í stað pósts við hverja beiðni keyrir safnpóstur virka daga klukkan 8. Samþykkjendur fá þá einn póst á morgnana, og sá sem sendi reikning frá Prófun hf. fær póst þegar hann er samþykktur.
Staðfesta
- RdN Tölvupóstur samþykkta stendur undir réttum reikningi á síðunni Úthlutun á aðstæðum tölvupósts.
- Samþykkjandi fær póst þegar reikningur er sendur til hans, eða þegar safnpósturinn keyrir.
- Í póstinum er hnappur sem opnar skjalið.