Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Hafna reikningi

Ef reikningur er rangur hafnar samþykkjandinn honum og segir af hverju. Skjalið fer aftur í Opið svo bókarinn geti lagað það og sent það aftur í samþykkt.

Sviðsmynd

Innkaupastjóri Dæmi ehf. sér að reikningur frá Prófun hf. er með rangt magn. Hún hafnar honum með athugasemdinni „Við fengum 8 stykki, ekki 10“. Bókarinn fær tölvupóst, biður um kreditreikning og sendir reikninginn aftur.

Áður en þú byrjar

  • Skjalið bíður samþykkis hjá þér.

Skref fyrir skref

  1. Veldu beiðnina í Beiðnir til samþykktar, eða opnaðu skjalið, og veldu Hafna.

    Aðgerðin Hafna á beiðni til samþykktar

  2. Ef Þvinga athugasemd á höfnun er virkt opnast gluggi þar sem þú verður að skrifa athugasemd. Ef stillingin er ekki virk spyr kerfið Viltu skilja eftir athugasemd? Veldu Já og skrifaðu athugasemd, eða Nei til að hafna án athugasemdar.

  3. Bókarinn opnar skjalið. Samþykkt hafnað, Hafnandi samþykktar og Athugasemd höfnunar sýna hver hafnaði og af hverju. Athugasemdin sést líka í Athugasemdir samþykktar.

    Hafnaður innkaupareikningur

  4. Bókarinn lagar skjalið og velur Senda samþykktarbeiðni aftur, sjá Senda í samþykkt.

Niðurstaða

Skjalið er Opið og merkt sem hafnað þar til það er sent aftur. Bókarinn fær tölvupóst ef Senda tölvupóst við höfnun er virkt. Þegar skjalið er sent aftur byrjar samþykktin frá byrjun, og í Beiðnir til samþykktar sýnir Áður hafnað? að því hafi verið hafnað áður.

Ef eitthvað fer úrskeiðis

  • Þú verður að skilja eftir athugasemd til að hafna samþykkt. Þvinga athugasemd á höfnun er virkt. Skrifaðu athugasemd og hafnaðu aftur.
  • Athugasemdin sést ekki á skjalinu. Ef Geyma athugasemdir í RL minnispunktum er virkt vistast hún líka í minnispunktum skjalsins, sjá Stillingar samþykkta.

Öll skilaboð eru í Aðstoð.