Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Hætta við samþykktarbeiðni

Skjali sem bíður samþykkis er ekki hægt að breyta. Ef þú þarft að breyta því hættir þú við samþykktarbeiðnina, lagar skjalið og sendir það aftur.

Sviðsmynd

Bókari hjá Dæmi ehf. sendi reikning í samþykkt á rangan samþykkjendahóp. Hún hættir við beiðnina, velur réttan hóp og sendir aftur.

Áður en þú byrjar

  • Skjalið er í stöðunni Bíður samþykkis og þú sendir það í samþykkt.

Skref fyrir skref

  1. Opnaðu skjalið og veldu Hætta við samþykktarbeiðni.

  2. Til að hætta við mörg í einu opnar þú Innkaupareikningar, velur reikningana og velur Hætta við samþykktabeiðnir fyrir valda reikninga. Kerfið sýnir Hætt við %1 samþykktabeiðnir.

    Hætta við samþykktabeiðnir fyrir valda reikninga

  3. Lagaðu skjalið og sendu það aftur, sjá Senda í samþykkt.

Niðurstaða

Skjalið er Opið, opnar samþykktarfærslur eru felldar niður og beiðnin hverfur af lista samþykkjandans.

Ef eitthvað fer úrskeiðis

  • Aðgerðin er ekki virk. Skjalið bíður ekki samþykkis, eða það hefur þegar verið samþykkt. Útgefið skjal opnar þú með Opna aftur.

Öll skilaboð eru í Aðstoð.