Notkun
Þessi hluti fjallar um daglega vinnu í Samþykktakerfi eftir að það hefur verið sett upp. Uppsetning er í Stillingar og reitum og aðgerðum er lýst í Uppfletting.
Yfirlit
Innkaupaskjal með Samþykkjendahóp er sent í samþykkt og fær stöðuna Bíður samþykkis. Samþykkjendur hópsins samþykkja það í röð eftir raðnúmeri. Þegar síðasti samþykkjandinn hefur samþykkt verður skjalið Útgefið og það má bóka. Ef einhver hafnar fer skjalið aftur í Opið.
Hvernig þetta virkar
Senda og fylgjast með
- Stofna reikning úr skannaðri mynd: reikningur eða kreditreikningur úr mynd.
- Senda í samþykkt: eitt skjal eða mörg í einu.
- Fylgjast með samþykktum: hver á eftir að samþykkja og áminningar.
- Hætta við samþykktarbeiðni: taka skjal úr samþykkt til að breyta því.
- Innkaupapantanir í samþykkt: þegar pantanir fara líka í samþykkt.
- Sleppa samþykkt með undanþágu: endurteknir reikningar án samþykktar.
Samþykkja
- Samþykkja reikning: í Beiðnir til samþykktar eða á Samþykktavefnum.
- Hafna reikningi: með athugasemd, og hvernig bókarinn lagar reikninginn.
- Framsenda samþykktarbeiðni: til annars samþykkjanda.
- Línusamþykktir: hver samþykkjandi samþykkir sínar línur.
Ávinningur
Bókarinn sér alltaf hvar hvert skjal er statt og getur minnt á það. Samþykkjandinn sér aðeins það sem hann á að samþykkja, með mynd af reikningnum, og getur unnið úr því í Business Central eða á Samþykktavefnum.