Listi skannaðra mynda
Þessi síða er fyrir þá sem skrá innkaupareikninga. Listi skannaðra mynda geymir myndir og PDF-skjöl sem hafa ekki verið notuð, og þaðan eru innkaupaskjöl stofnuð. Hvernig það er gert er í Stofna reikning úr mynd.
Yfirlit
Listinn sýnir skjöl á innleið sem hafa ekki verið unnin. Til vinstri er listi myndanna og til hægri sést valda myndin. Þegar innkaupaskjal er stofnað úr mynd hverfur myndin af listanum og fylgir skjalinu. Ekki er hægt að breyta reitunum.

Listinn opnast líka úr Myndir > Bæta við mynd á innkaupaskjali. Þá sést Tengja mynd en aðgerðirnar sem stofna og eyða sjást ekki.
Reitir
| Reitur | Hvað hann sýnir |
|---|---|
| Lýsing | Heiti skrárinnar. |
| Stofnað | Hvenær skráin var lesin inn. |
Aðgerðir
| Aðgerð | Hvað hún gerir |
|---|---|
| Flytja inn skjöl | Les inn skrá af tölvunni þinni sem nýja mynd á listanum. |
| Draga og sleppa | Opnar síðu þar sem þú dregur skrár inn. Sést aðeins ef viðbótin Drag and Drop er sett upp. |
| Skoða Mynd | Sækir valda mynd svo þú getir opnað hana. |
| Tengja mynd | Tengir valda mynd við innkaupaskjalið sem listinn var opnaður úr. |
| Eyða mynd | Spyr Viltu eyða völdu skjali? og eyðir myndinni. |
| Stofna innk.reikn. | Stofnar innkaupareikning með valda mynd tengda. Ef fleiri myndir eru valdar fara þær allar á sama reikning. |
| Stofna kred.reikn. | Stofnar innkaupakreditreikning með valda mynd tengda. |
| Stofna innk.reikn. án myndar | Opnar nýjan innkaupareikning án myndar. |
| Stofna kred.reikn. án myndar | Opnar nýjan innkaupakreditreikning án myndar. |