Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Samþykkja reikning

Samþykkjandi sér þau skjöl sem bíða hans í Beiðnir til samþykktar, ásamt mynd af reikningnum. Hann getur líka samþykkt á Samþykktavefnum, til dæmis í síma.

Sviðsmynd

Innkaupastjóri Dæmi ehf. fær tölvupóst um að reikningur frá Prófun hf. bíði samþykkis. Hún skoðar myndina, sér að upphæðin er rétt og samþykkir.

Áður en þú byrjar

  • Þú ert í samþykkjendahóp skjalsins og það er komið að þér.
  • Þú hefur heimildasafnið RDN APPROVER.

Skref fyrir skref

  1. Opnaðu Beiðnir til samþykktar. Sjálfgefið sjást aðeins opnar beiðnir sem bíða þín.

    Beiðnir til samþykktar

  2. Veldu beiðnina. Myndin af reikningnum sést við hliðina. Með Næsta Mynd og Fyrri Mynd flettir þú á milli mynda ef þær eru fleiri. Opna færslu opnar sjálft skjalið.

  3. Veldu Samþykkja. Þú getur líka samþykkt á skjalinu sjálfu.

    Samþykkt innkaupareikningur

Niðurstaða

Ef þú ert síðasti samþykkjandinn verður skjalið Útgefið og bókarinn getur bókað það. Hann fær tölvupóst ef Senda tölvupóst við samþykkt er virkt. Annars fer beiðnin til næsta samþykkjanda í röðinni, Sendar samþykktir sýnir hann og staðan er áfram Bíður samþykkis.

Ef fleiri samþykkjendur hafa sama raðnúmer nægir að einn þeirra samþykki, nema hakað sé í Allir þurfa að samþykkja. Sjá Samþykkjendahópar.

Ef eitthvað fer úrskeiðis

Öll skilaboð eru í Aðstoð.