Senda í samþykkt
Innkaupaskjal fer ekki til bókunar fyrr en það hefur verið samþykkt. Þú sendir það í samþykkt þegar það er tilbúið, og kerfið sendir beiðnina á fyrsta samþykkjandann í Samþykkjendahóp skjalsins.
Sviðsmynd
Bókari hjá Dæmi ehf. hefur skráð reikning frá Prófun hf. Lánardrottinn er tengdur við hópinn INNKAUP, svo reikningurinn fer til innkaupastjóra til samþykktar.
Áður en þú byrjar
- Verkflæði samþykkta er virkt, sjá Stillingar samþykkta.
- Skjalið er í stöðunni Opið og með línum.
Skref fyrir skref
-
Opnaðu innkaupareikninginn. Athugaðu að Samþykkjendahópur sé fylltur út. Hann kemur frá lánardrottni en þú getur breytt honum.
-
Veldu Senda samþykktarbeiðni.

-
Ef Aðvörun á tómum línum er virk og lína er án magns eða upphæðar spyr kerfið hvort halda eigi áfram.
Til að senda mörg skjöl í einu opnar þú Innkaupareikningar, velur reikningana og velur Senda samþykktabeiðnir fyrir valda reikninga. Kerfið sýnir %1 Samþykktabeiðnir sendar, þar sem %1 er fjöldinn.
Niðurstaða
Staða skjalsins er Bíður samþykkis og það er ekki hægt að bóka það. Sendar samþykktir sýnir hver á að samþykkja núna, fyrst samþykkjandann með lægsta raðnúmer í hópnum. Hann fær tölvupóst ef Senda tölvupóst við samþykktarbeiðni er virkt, og sér beiðnina í Beiðnir til samþykktar. Hvernig á að fylgjast með framhaldinu er í Fylgjast með samþykktum.
Ef eitthvað fer úrskeiðis
- Innkaupareikningur %1 hefur engan samþykktarhóp. Veldu Samþykkjendahópur á skjalinu og sendu aftur.
- Senda samþykktarbeiðni er ekki í boði. Verkflæðið er ekki virkt, eða skjalið er ekki Opið.
- Skjalið var gefið út án samþykktar. Það passaði við undanþágureglu, sjá Sleppa samþykkt með undanþágu.
Öll skilaboð eru í Aðstoð.