H3 laun tenging
H3 laun tenging frá Rue de Net les launafærslur úr H3 inn í fjárhagsfærslubók í Business Central. Bókari getur þannig flutt laun og launatengd gjöld milli kerfanna án þess að slá færslurnar inn aftur.
Yfirlit
- Fyrstu skref: stilltu dagsetningarsnið fyrir fyrsta innlestur.
- Flytja inn launafærslur: veldu H3-skrá og yfirfarðu færslurnar.
- Aðstoð: leystu úr villum við innlestur.
Hvernig þetta virkar
Þú flytur bókhaldsskrá úr H3 og velur hana í færslubókinni. Tengingin býr til óbókaðar línur í valinni keyrslu. Þú ferð yfir línurnar og bókar þær síðan með hefðbundinni bókun færslubókar.
Innlestur bætir ekki við línur sem fyrir eru: ef keyrslan er ekki tóm er spurt hvort eyða eigi þeim öllum áður en nýju færslurnar eru lesnar inn.
Ávinningur
Þú sparar endurtekinn innslátt og getur borið færslurnar saman við launauppgjörið áður en þær eru bókaðar.