Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Launa tenging

Launa tenging frá Rue de Net sækir launafærslur úr Launa í færslubók í Business Central. Hún er fyrir bókara sem vilja flytja laun og launatengd gjöld milli kerfanna án þess að slá færslurnar inn aftur.

Yfirlit

Umsjónaraðili setur inn tengiupplýsingar frá Launa. Bókari sækir síðan einn mánuð í einu í þá færslubók sem á að taka við laununum.

Hvernig þetta virkar

  1. Tengdu Launa með vefslóð og API lykli.
  2. Flyttu inn valinn mánuð.
  3. Yfirfarðu línurnar og bókaðu með hefðbundinni bókun í Business Central.

Innflutningurinn býr til óbókaðar línur; hann bókar hvorki launin né greiðir þau.

Ávinningur

Þú sleppur við að endurskrá launafærslur og getur borið þær saman við launaskýrsluna áður en þær fara í bókhaldið.