Vala AI
Vala er gervigreindaraðstoð frá Rue de Net inni í Business Central. Þú spyrð á venjulegu máli og færð svar um gögn fyrirtækisins, með töflum og tenglum á færslur þegar það á við.
Yfirlit
Þú getur spurt um viðskiptavini, pantanir og birgðir, haldið áfram eldri samtölum og vistað spurningar sem þú notar oft. Ef svarið leysir ekki málið geturðu óskað eftir aðstoð ráðgjafa.
Hvernig þetta virkar
Vala les gögn með þínum aðgangi í Business Central. Hún bókar ekki skjöl og stofnar ekki, breytir eða eyðir viðskiptagögnum. Samtöl og vistaðar fyrirspurnir eru hins vegar geymd svo þú getir notað þau aftur.
Viðvörun
Svör Völu eru gervigreindarmynduð og geta verið röng. Skoðaðu færslurnar í Business Central áður en þú byggir ákvörðun á svarinu.
Ávinningur
Þú getur byrjað á spurningu í stað þess að setja saman skýrslu og opnað viðeigandi færslur til að kanna niðurstöðuna.