Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Farmbréfakerfi

Farmbréfakerfið er viðbót fyrir fyrirtæki sem senda vörur úr Business Central með Póstinum, Flytjanda eða Landflutningum. Þú stofnar farmbréf úr afhendingunni og heldur utan um sendingarnúmer og límmiða við sendinguna.

Yfirlit

  • Stofna og senda farmbréf við bókun söluafhendingar eða eftir á.
  • Prenta og rekja sendingu, endurprenta límmiða eða senda leiðréttingu til Flytjanda.
  • Prenta innanhússmerkingar án strikamerkis flutningsaðila. Dropp býður upp á límmiða fyrir fyrirliggjandi pöntun, ekki stofnun nýrrar sendingar.

Hvernig þetta virkar

Miðlari og miðlaraþjónusta á afhendingu ráða tengingu og sniðmáti. Farmbréfið fær viðtakanda, pakkningafjölda og vörulínur úr afhendingunni. Þegar sending tekst fær það stöðuna Sent og sendingarnúmer. Farmbréf er áfram aðgengilegt úr bókaðri söluafhendingu og tengdum sölureikningi.

Prentun er háð flutningsaðila og prentunaraðferð. Ekki gera ráð fyrir að allir flutningsaðilar styðji sömu aðgerðir.

Ávinningur

Þú notar upplýsingar úr afhendingunni í stað þess að skrá þær aftur hjá flutningsaðila og finnur sendinguna aftur þegar viðskiptavinur spyr um hana.