Motus tenging
Motus tenging Rue de Net er viðbót við Business Central til að meðhöndla milliinnheimtu í gegnum Motus. Viðbótin talar beint við vefþjónustu Motus, svo þú þarft ekki að skrá þig inn á vef Motus fyrir algengustu aðgerðir.
Hvernig þetta virkar
- Kröfur sem eru í innheimtu hjá Motus eru sóttar í Motus Vinnuskjal. Þar sérðu stöðu, eftirstöðvar og sögu hverrar kröfu.
- Á kröfuspjaldinu er hægt að fresta kröfu, fella hana niður, skila henni, breyta höfuðstól og tilkynna greiðslu. Aðgerðin er send til Motus og skráð í aðgerðasögu kröfunnar.
- Úr viðskiptamannafærslum er hægt að senda opna færslu til Motus sem nýja kröfu.
- Greiðslur sem Motus innheimtir eru sóttar í Motus Kröfugreiðslur og fluttar í færslubók til bókunar.
- Vinnsluraðarfærsla getur sótt kröfur og greiðslur sjálfkrafa.
Ávinningur
Yfirsýn yfir kröfur í milliinnheimtu í Business Central, færri handfærðar greiðslur og saga allra aðgerða á einum stað.