Tímaskráning
Tímaskráning er viðbót við Business Central fyrir fyrirtæki sem skrá vinnu á verkefni. Starfsfólk skráir tíma, ábyrgðaraðilar fara yfir þá og samþykktir tímar verða að færslubókarlínum verkefnis.
Yfirlit
- Skrá tíma í dagatali eða lista.
- Senda tíma og leiðrétta hafnanir.
- Yfirfara tíma og ákveða rukkanlegt magn.
- Stofna færslubókarlínur úr samþykktum tímum.
- Nota valkvæðar tillögur, Jira tengingu og markmið.
Hvernig þetta virkar
Hjá Dæmi ehf. eru tveir tímar skráðir á verkefni 1000. Ábyrgðaraðili samþykkir vinnuna og getur ákveðið annað rukkanlegt magn. Færslubókarlínan varðveitir bæði unnið magn og magn til reikningsfærslu. Línan er síðan bókuð í verkefnabókhaldi; samþykktin gefur ekki sjálfkrafa út reikning.
Ávinningur
Unnir tímar, yfirferð og verkefnafærslur tengjast í einu kerfi. Þú getur rakið tímann áfram án þess að endurskrá hann í færslubók.