Hoppa yfir í efnið

Varpanir

Varpanir eru notaðar til að mynda NAV skjal úr rafrænum reikningum. Notendur þurfa að skrá varpanir á hvert skipti sem nýtt skjal berst og kerfið lærir að notar þær ef svipað rafrænt skjal berst aftur inn.

alt text

eSkjal vörpun nr.:

Númer vörpunar, sjálfgefið frá kerfinu.

eSkjal tegund:

Tegund rafræns reiknings. Getur verið Birgi, Vara, Mælieining, Vöruflokkur, Viðskiptamaður, Eiginleiki vöru, Aðsetur lína, Viðbótarvísun skjals eða Bókunarupplýsingar.

eSkjal vörpun nafn:

Gildi fyrir nafn vörpunar, t.d. nafn birgja eða vöru.

eSkja kenni:

Gildi fyrir tegund, t.d. kennitala birgja eða númer vöru.

eSkjal tegund 2:

Oftast bókunarupplýsingar eða eiginleiki vöru.

eSkjal vörpun nafn 2:

Gildi fyrir nafn vörpunar, t.d. nafn birgja eða vöru.

eSkjal kenni 2:

Gildi fyrir tegund 2, t.d. bókunarupplýsing eða eiginleiki vöru.

Skattflokkur:

Hægt er að varpa vörunúmeri eftir skattflokkum ef sama vörunúmer kemur með mismunandi skattflokkum.

Tegund á NAV skjali. Getur verið Fjárhagur, Vara, Birgi, Eign, Kostnaðarauki (vöru), Mælieiningar, Vöruflokkur, Viðskiptamaður, Sendist-til aðsetur, Deild/Verkefni, Vídd, Skilyrt eða Birgðageymsla.

Gildi fyrir tegund í NAV, t.d. kennitala birgja eða númer vöru eða fjárhagsreiknings.

Lýsing í kerfinu:

Lýsing á gildi í NAV.

Önnur gildi til að varpa í NAV skjal. T.d. verkefni þegar deild er valin í NAV kenni 1.

Bóka VSK á NAV kenni 1:

Er eingöngu notað á fjárhagsreikning sem er án vsk. Ef hak er sett í þennan reit þá heimilar kerfið vörpun á fjárhagsreikningi án vsk þó svo að skattflokkur línunnar gefi til kynna að það sé með vsk.

Stofnað af notanda:

Kenni notanda sem skráði vörpunum.

Dags. breytt:

Dagsetning og tími sem vörpun var skráð eða breytt.

Stillingar rafrænna skjala lánardrottins

Þessi gluggi heldur utan um allar stillingar fyrir rafræna reikninga lánardrottna svo sem dreifisvæði, gerð eskjals o.fl. Upplýsingar sem eru fylltar út undir flipanum "Rafrænir reikningar" á lánardrottnaspjaldi sjást í þessum lista.

alt text

Reitur / Stilling Lýsing
Nr. Númer lánardrottins.
Heiti Heiti lánardrottins.
Dreifisvæði Velja dreifisvæði til að senda rafræn skjöl til viðskiptamannsins.
Gerð eDoc skjals Velja staðal sem á að nota til að senda rafræn skjöl til viðskiptamannsins. Getur verið BII, NES eða EDI.
GLN númer Bara notað ef um EDI samskipti er að ræða, þá er EAN kennitala fyrirtækis sett hér.
X400 pósthólf Pósthólf birgja fyrir EDI samskipti.
Nota grunnmælieiningu Ef hakað er við, verður grunnmælieining staðalsins (PCE fyrir EDI, C62 fyrir BII) sett á allar línur pöntunar á þennan lánardrottinn. Ef ekki, er notast við vörpunum mælieininga (t.d. KG verður KGM í BII/EDI reikningum).
Athuga pöntunarnúmer Ef hakað er við, athugar kerfið hvort pöntunarnúmer vanti í rafrænt skjal og kemur með villumeldingu ef svo er.
Sameiginlegt vörunúmer Ef hakað er við, varpast vörunúmer birgja sjálfkrafa yfir á viðskiptavin.