Stillingar rafrænna skjala lánardrottins
Þessi gluggi heldur utan um allar stillingar fyrir rafræna reikninga lánardrottna svo sem dreifisvæði, gerð eskjals o.fl. Upplýsingar sem eru fylltar út undir flipanum "Rafrænir reikningar" á lánardrottnaspjaldi sjást í þessum lista.

| Reitur / Stilling | Lýsing |
|---|---|
| Nr. | Númer lánardrottins. |
| Heiti | Heiti lánardrottins. |
| Dreifisvæði | Velja dreifisvæði til að senda rafræn skjöl til viðskiptamannsins. |
| Gerð eDoc skjals | Velja staðal sem á að nota til að senda rafræn skjöl til viðskiptamannsins. Getur verið BII, NES eða EDI. |
| GLN númer | Bara notað ef um EDI samskipti er að ræða, þá er EAN kennitala fyrirtækis sett hér. |
| X400 pósthólf | Pósthólf birgja fyrir EDI samskipti. |
| Nota grunnmælieiningu | Ef hakað er við, verður grunnmælieining staðalsins (PCE fyrir EDI, C62 fyrir BII) sett á allar línur pöntunar á þennan lánardrottinn. Ef ekki, er notast við vörpunum mælieininga (t.d. KG verður KGM í BII/EDI reikningum). |
| Athuga pöntunarnúmer | Ef hakað er við, athugar kerfið hvort pöntunarnúmer vanti í rafrænt skjal og kemur með villumeldingu ef svo er. |
| Sameiginlegt vörunúmer | Ef hakað er við, varpast vörunúmer birgja sjálfkrafa yfir á viðskiptavin. |