Stillingar á rafrænum reikningum viðskiptavinar
Þessi gluggi heldur utan um allar stillingar fyrir rafræna reikninga viðskiptavina svo sem dreifisvæði, gerð eskjals o.fl. Upplýsingar sem eru fylltar út undir flipanum "Rafrænir reikningar" á viðskiptavinaspjaldi sjást í þessum lista.

| Reitur / Stilling | Lýsing |
|---|---|
| Nr. | Númer viðskiptavinar. |
| Heiti | Heiti viðskiptavinar. |
| Dreifisvæði | Velja dreifisvæði til að senda rafræn skjöl til viðskiptamannsins. |
| Gerð eDoc skjals | Velja staðal sem á að nota til að senda rafræn skjöl til viðskiptamannsins. Getur verið BII, NES eða EDI. |
| GLN númer | Bara notað ef um EDI samskipti er að ræða, þá er EAN kennitala fyrirtækis sett hér. |
| X400 pósthólf | Pósthólf birgja fyrir EDI samskipti. |
| Nota grunnmælieiningu | Ef hakað er við, verður grunnmælieining staðalsins (PCE fyrir EDI, C62 fyrir BII) sett á allar línur reikninga á þennan viðskiptamann. Ef ekki, er notast við vörpunum mælieininga (t.d. KG verður KGM í BII/EDI reikningum). |
| Fjöldi afhendingaraðsetra | Sýnir fjölda aðsetra sem eru skráð til að taka á móti rafrænum reikningum. Sjá nánar. |
Tengt
| Aðgerð / Lýsing | Útskýring |
|---|---|
| Sendist-til Aðsetur | Opnar glugga fyrir stillingar á rafrænum reikningum afhendingaraðseturs. Sjá nánar. |