Lánardrottnaspjald
Það þarf að stilla rafræn skjöl á lánardrottnaspjaldi til að senda innkaupapantanir rafrænt til birgja. Þetta er gert í flipanum "Rafræn skjöl" inn á Lánadrottnaspjaldi og á við EDI samskipti.

| Reitur / Stilling | Lýsing |
|---|---|
| Nota grunnmælieiningar | Já eða nei. Ef já, verður grunnmælieining staðalsins sett á allar línur pöntunar. |
| Dreifisvæði | Velja dreifisvæði til að senda rafræn skjöl til viðskiptamanns. |
| Gerð eDoc skjals | Velja staðal (BII, NES, EDI) sem á að nota til að senda rafræn skjöl. |
| EAN kenni | Bara notað ef um EDI samskipti er að ræða. |
| X400 pósthólf | Pósthólf birgja fyrir EDI samskipti. |
| Uppsetning bókunartexta | Ef ekkert er valið, notar kerfið standard bókun í BC. Nánar |
| Athuga pöntunarnúmer | Ef hakað er við, athugar kerfið hvort pöntunarnúmer vanti í rafrænt skjal og kemur með villumeldingu ef svo er. |
| Sameiginlegt vörunúmer | Ef hakað er við, varpast vörunúmer birgja sjálfkrafa yfir á viðskiptavin. |
| Hunsa línur | Ef hakað er við, verða allar línur í rafrænu skjali hunsaðar þegar skjalið er skráð í NAV. |
| Sameina línur | Ef hakað er við, verða allar línur með sama bókhaldslykil sameinaðar í eina línu í NAV. |
Tengt
| Aðgerð / Tenging | Lýsing |
|---|---|
| Rafræn skjöl | Opnar vinnuskjali rafræna reikninga með afmörkun á rafræn skjöl lánardrottins. |
| Mynda rafræn skjöl | Hægt er að mynda rafræna pöntun á tilteknum lánardrottni. Nánar |