Senda innkaupapöntun
Rafrænir Reikningar styðja sendingu pantana á birgja.
1. Lánardrottnaspjald:

Vegna innkaupapantana hjá heildsölu er oft nauðsynlegt að senda pöntun í grunnmælieiningu. Þetta er stillt á lánardrottnaspjaldi.
Ef það á að nota grunnmælieiningu þarf að haka í reitinn "Nota grunnmælieingu" lánardrottnaspjaldinu undir flipanum "Rafræn skjöl".
Svo þarf að skrá dreifisvæði, gerð eDoc skjals, EAN kenni og x400 pósthólf.
2. Innkaupapöntun:

Innkaupapöntunin er skráð í innkaupamælieiningu. Í okkar dæmi er það KASSI sem inniheldur 10 stykki.
Reikningsnúmer lánardrottins er skilið eftir tómt.
3. Rafræn pöntun á útleið stofnuð:
Um leið og innkaupapöntunin er útgefin, þá stofnast rafræn pöntun á útleið í vinnuskjalinu.

4. Rafræn pöntun:

Rafræn pöntun var stofnuð með 100 stykkjum skv. okkar dæmi þar sem átti að nota grunnmælieiningu vöru til þess að senda rafrænt til birgja.