Vinna með kröfur
Kröfur sem eru í innheimtu hjá Motus birtast í Motus Vinnuskjal. Opnaðu það með leitinni, úr Motus hópnum á hlutverkasíðunni eða úr viðskiptamannafærslum.
Sækja kröfur
Veldu Sækja allar kröfur til að uppfæra vinnuskjalið frá Motus, eða Sækja kröfur með stöðu... til að sækja aðeins eina stöðu. Ósamþykktar kröfur eru aðeins sóttar ef hakað er í Sækja ósamþykktar kröfur á Motus Uppsetning. Notaðu hakreitina efst í vinnuskjalinu til að afmarka á stöðu og innheimtuferli.

Aðgerð á eina kröfu
- Veldu kröfuna og síðan Spjald.
- Veldu aðgerðina:
- Fresta kröfu: skráðu Nýr frestur. Innheimtuaðgerðum er frestað fram að þeim degi.
- Fella niður kröfu: krafan er felld niður.
- Skila kröfu: krafan er tekin úr milliinnheimtu og skilað.
- Breyta höfuðstól kröfu: skráðu Nýr höfuðstóll.
- Tilkynna greiðslu á kröfu: skráðu Upphæð greiðslu.
- Veldu Ástæða aðgerðar og staðfestu.
Aðgerðin er send strax til Motus og staða kröfunnar breytist, til dæmis í Frestað, Felld niður eða Skilað. Aðgerðin er skráð í Aðgerðarsaga kröfu með notanda og tíma. Veldu Uppfæra kröfu til að sækja nýjustu stöðu og eftirstöðvar.
Á spjaldinu eru líka Sögulínur máls, Athugasemdir máls, Viðhengi og Opna Motus-vef.
Aðgerðir á margar kröfur
- Veldu Aðgerðatillögur á kröfur (eða Aðgerðatillögur á valdar kröfur). Kerfið stingur upp á Aðgerð þar sem það á við. Þú getur líka valið aðgerð og ástæðu beint í línunum.
- Farðu yfir línurnar og hakaðu í Framkvæma Aðgerð á þeim sem á að senda. Fylltu út Nýr frestur eða Nýr höfuðstóll ef aðgerðin krefst þess.
- Veldu Framkvæma aðgerðir (eða Framkvæma aðgerðir á völdum kröfum).
Veldu Hreinsa aðgerðatillögur á völdum kröfum til að hætta við tillögur. Á Motus Uppsetning er hægt að láta haka sjálfkrafa í Framkvæma Aðgerð og sleppa tillögum fyrir tiltekin innheimtuferli.