Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Kröfugreiðslur

Greiðslur sem Motus hefur innheimt eru sóttar í Motus Kröfugreiðslur og fluttar þaðan í færslubók.

Áður en þú byrjar

Flýtiflipinn Kröfugreiðslur á Motus Uppsetning þarf að vera útfylltur, sjá Fyrstu skref.

Skref

  1. Opnaðu Motus Kröfugreiðslur og veldu Sækja kröfugreiðslur.
  2. Veldu tímabil. Sjálfgefið er frá síðustu sóttu greiðslu, eða mánuð aftur í tímann, til dagsins í dag. Greiðslur sem þegar hafa verið sóttar eru ekki sóttar aftur.
  3. Veldu Flytja í færslubók til að flytja allar óbókaðar greiðslur, eða Flytja valdar greiðslur í færslubók. Hakaðu í Ekki færa færslu á greiðslu sem á ekki að flytja.
  4. Farðu yfir línurnar í færslubókinni sem opnast og bókaðu.

Tímabil valið áður en Motus kröfugreiðslur eru sóttar. Hætta við lokar án fyrirspurnar.

Niðurstaða

Fyrir hverja greiðslu verða til línur fyrir höfuðstól, vexti og kostnað kröfuhafa á móti Motus fjárhagsreikningur eða Motus bankareikningur. Bókunardagsetning er uppgjörsdagur greiðslunnar. Höfuðstóllinn jafnast á reikninga viðskiptamanns sem tengdir eru kröfunni. Ef enginn tengdur reikningur finnst er greiðslan færð á viðskiptamanninn án jöfnunar. Þegar greiðsla hefur verið bókuð er hakað í Bókað.

Vinnsluraðarfærsla getur líka sótt, flutt og bókað greiðslur sjálfkrafa, sjá Sjálfvirkni.