Aðstoð
„…“ stendur fyrir notanda, færslunúmer eða villutexta frá Motus.
Tenging
| Skilaboð | Skýring | Hvað á að gera |
|---|
| Enginn Motus notandi fannst á notanda '…' | Business Central notandinn þinn er ekki skráður í Motus Notendur. | Fáðu kerfisstjóra til að skrá þig með Motus notandanafni og lykilorði. |
| Villa átti sér stað við að reyna að uppfæra kröfuna: … | Ekki tókst að sækja nýjustu gögn þegar kröfuspjaldið var opnað. | Lestu villutextann. Prófaðu tenginguna með Prófa tengingu á Motus Uppsetning. |
Kröfur
| Skilaboð | Skýring | Hvað á að gera |
|---|
| Viðsm. færsla … nú þegar til hjá Motus | Færslan hefur þegar verið send til Motus. | Finndu kröfuna í Motus Vinnuskjal. |
| Ekki nægar kröfuupplýsingar fyrir hendi til að eiga rafræn samskipti, viltu opna Motus vef? | Kröfuna vantar banka, höfuðbók og númer, svo ekki er hægt að senda aðgerðina. | Svaraðu játandi og kláraðu aðgerðina á vef Motus. |
| Fylla verður inn gildið 'Nýr Frestur' ef fresta á kröfu | Frestun var valin án nýs frests. | Fylltu út Nýr frestur og reyndu aftur. |
| Ástæða verður að hafa gildi | Aðgerð var framkvæmd úr vinnuskjali án ástæðu. | Veldu Ástæða í línunni. Ef listinn er tómur skaltu fylla út Motus Ástæða. |
Tilkynna greiðslu
Stillingarnar Stysti tími milli greiðslna og Á að birta villu á Motus Uppsetning stjórna þessum skilaboðum.
| Skilaboð | Skýring | Hvað á að gera |
|---|
| Of stutt er síðan síðasta greiðsla barst, ekki má tilkynna nýja greiðslu | Greiðsla hefur borist á kröfuna innan Stysti tími milli greiðslna. | Athugaðu hvort greiðslan hafi þegar borist í Motus Kröfugreiðslur. |
| Ekki má tilkynna greiðslu tvisvar inná þessa kröfu | Stysti tími milli greiðslna er tómur og hakað er í Á að birta villu. Þá er ekki hægt að tilkynna greiðslu úr Business Central. | Fáðu kerfisstjóra til að fylla út Stysti tími milli greiðslna, til dæmis 7D. |
| Áður hefur verið tilkynnt greiðsla á þessa kröfu, viltu samt halda áfram? | Sama staða og að ofan, en stillt er á staðfestingu í stað villu. | Svaraðu játandi ef greiðslan á að fara til Motus. |