Fyrstu skref
Áður en Motus tenging er tekin í notkun þarf að skrá samskiptaupplýsingar, Motus notendur og ástæður aðgerða. Hægt er að sleppa stillingum fyrir þá hluta kerfisins sem ekki eru notaðir.
Áður en þú byrjar
Þú þarft notandanafn og lykilorð hjá Motus fyrir hvern starfsmann sem notar tenginguna, og Motus númer kröfuhafa fyrirtækisins.
Skref
- Opnaðu Setja upp Motus tengingu Rue de Net í Uppsetning með hjálp. Leiðsögnin fer yfir helstu stillingar. Einnig er hægt að fylla beint út í Motus Uppsetning.
- Slóð á vefþjónustu: ef reiturinn er tómur í leiðsögninni er sjálfgefin slóð Motus notuð.
- Motus númer kröfuhafa: númerið sem Motus gefur fyrirtækinu.
- Opnaðu Motus Notendur og tengdu hvern Business Central notanda við Motus Notandanafn og Motus Lykilorð hans. Allar aðgerðir eru sendar til Motus á notanda þess sem framkvæmir þær.
- Opnaðu Motus Ástæða og veldu Fylla inn sjálfgefnar ástæður til að fá sex algengar ástæður. Velja þarf ástæðu þegar kröfu er frestað, hún felld niður, henni skilað eða höfuðstól breytt.
- Ef þú ætlar að flytja greiðslur í færslubók skaltu fylla út flýtiflipann Kröfugreiðslur: Heiti bókarsniðmáts, Heiti bókarkeyrslu, Motus fjárhagsreikningur (eða Nota bankareikning fyrir innheimtukostnað og Motus bankareikningur), Bókh. reikn. vaxta og Bókh. reikn. kostn. Bókarkeyrslan þarf númeraröð.
- Veldu Prófa tengingu á Motus Uppsetning. Ef allt er rétt birtist Tenging tókst!; ef prófun mistekst, sjá Aðstoð.


Tengja kröfur við viðskiptamannafærslur
Til að greiðslur jafnist á réttan reikning þarf að segja kerfinu hvar kröfunúmerið er geymt, undir Reitaval tenging viðskm. færslu á Motus Uppsetning:
- Ef kröfunúmerið er geymt á viðskiptamannafærslunni skaltu velja þann reit í Viðksm. færsla númer kröfureits.
- Ef kröfutaflan geymir hins vegar númer viðskiptamannafærslunnar skaltu haka í Viðskm. færslu nr. er á kröfutöflu og fylla út Töflunúmer krafna, Kröfunr. reitur og Nr. reits Viðskm. færsla.
Ef bankakerfi Rue de Net er sett upp fyllir leiðsögnin þessa reiti út sjálfkrafa. Eftir uppsetningu er hægt að nota Tengja valdar kröfur við viðksm. færslur í Motus Vinnuskjal.
Sjálfvirkni
Stofnaðu vinnsluraðarfærslu sem keyrir codeunit 10041865 og settu einn af eftirfarandi strengjum í Færibreytustrengur:
| Færibreytustrengur | Hvað gerist |
|---|---|
| (tómt) | Sækir allar kröfur, greiðslur gærdagsins og dagsins í dag, sögulínur, athugasemdir síðustu 30 daga og aðgerðatillögur. |
SaekjaAllarKrofur | Sækir allar kröfur. |
SaekjaKrofugreidslur | Sækir greiðslur gærdagsins og dagsins í dag. Stillingin Sækja færa og/eða bóka ræður hvort þær eru líka fluttar í færslubók og bókaðar. |
SaekjaAllarSogulinur | Sækir sögulínur allra mála. |
SaekjaAllarAthugasemdir | Sækir athugasemdir síðustu 30 daga. |
LinkToCLEs | Tengir opnar kröfur við viðskiptamannafærslur. |
StingaUppaAdgerdum | Stingur upp á aðgerðum fyrir kröfur. |
FramkvaemaAdgerdir | Framkvæmir aðgerðir á kröfum þar sem hakað er í Framkvæma Aðgerð. |
Hægt er að sameina síðustu tvo, til dæmis StingaUppaAdgerdum+FramkvaemaAdgerdir. Strengirnir eru skrifaðir án íslenskra stafa.
Niðurstaða
Tengingin er tilbúin og þú getur sótt kröfur í vinnuskjalið.