Skip to content
Guide

Search the Guide

Enter a query to search the Guide.

Íslenska
Menu

This page is not yet available in English. You are reading the Icelandic version.

Read in Icelandic
On this page

Notkun kostnaðarauka

Kostnaðaraukar eru notaðir til að bóka kostnað á birgðafærslu (t.d. flutningskostnaður, trygging, tollagjöld o.fl). Hægt er að stofna eins marga kostnaðarauka og nauðsynlegt er en hver kostnaðarauki getur verið tengdur við bókhaldslykla m.v. bókunarflokka. Hægt er að úthluta kostnaðarauka á pöntun, reikning og kreditreikning, bæði í sölu og innkaupum.

Fyrir sölu eða innkaupaskjöl er hægt að úthluta kostnaðarauka á tvenna vegu:

  • Á skjalinu þar sem vörurnar eru skráðar og sem eru tengdir við kostnaðarauka
  • Á aðskilinn reikning með því að tengja kostnaðarauka með bókaða móttöku eða afhendingu þar sem vörurnar eru skráðar og sem eru tengdir við kostnaðarauka.

Hér verður fjallað um notkun kostnaðarauka í innkaupaskjölum.

Stofna kostnaðarauka

  1. Opna Kostnaðaraukar. Kostnaðaraukar
  2. Stofna nýjann kostnaðarauka með því að fylla í Nr., Heiti, Alm. vörubókunarflokkur og VSK vörubókunarflokkur.

Úthlutun kostnaðarauka á innkaupum

  1. Til þss að geta notað kostnaðarauka þarf fyrst að leyfa móttöku við innkaup í innkaupagrunni (og afhending við sölu í sölugrunni ef við á). Innkaupagrunnur
  2. Búa til innkaupareikning með vörum. Innkaupareikningur
  3. Bóka innkaupareikninginn og þá bókast innkaupamóttakan í leiðinni. Bókuð innkaupamóttaka
  4. Búa til innkaupareikning fyrir kostnaðinn. Innkaupareikningur
  5. Velja Magn til úthlutunar sem er 0. Þá opnast glugginn Skipting kostnaðarauka. Skipting kostnaðarauka
  6. Velja Kostnaðarauki - Sækja móttökulínur. Velja móttökulínur sem verið var að bóka. Innkaupamóttökulínur
  7. Velja Kostnaðarauki - Leggja til skipting kostnaðarauka. Leggja til skipting kostnaðar
  8. Kerfið sýnir núna hvernig kostnaðaraukar munu úthlutast per innkaupamóttöku. Skipting kostnaðarauka
  9. Magn til úthlutunar á innkaupareikningslínu er núna 1. Innkaupareikningur
  10. Bóka innkaupareikninginn.
  11. Skoðum núna birgðafærslu sem myndast eftir að beinn kostnaður og kostnaðaraukareikninginn var bókaður. Birgðafærsla

Úthlutun kostnaðarauka á sama innkaupareikning

Hægt er að skrá kostnaðarauka á sama reikning en þá þarf að bóka móttöku vörurnar áður en hægt er að ákveða skiptingu kostnaðarauka.