Skip to content
Guide

Search the Guide

Enter a query to search the Guide.

Íslenska
Menu

This page is not yet available in English. You are reading the Icelandic version.

Read in Icelandic

Víddarbreytingar á fjárhagsfærslum

Í Business Central útgáfu 18 er kominn möguleiki um að breyta víddargildi á fjárhagsfærslum.

  1. Opna fjárhagsfærslur. Fjárhagsfærslur
  2. Velja færsluna sem breyta á víddum og velja Færsla - Leiðrétta víddir. Drög að víddarleiðréttingu
  3. Færslan var bókuð með vídd DEILD og víddargildi FRAML.
  4. Skrifa lýsing fyrir víddarbreytingu.
  5. Velja nýtt viddargildi í reitnum Nýr víddargildiskóði. T.d. SALA. Drög að víddarleiðréttingu
  6. Það er líka hægt að bæta við vídd og víddargildi sem var ekki notað í bókuninni. T.d. Verkefni og Verkefni1. Drög að víddarleiðréttingu
  7. Velja Staðfesta víddarbreytingar og haka í Keyra strax. Staðfestingin athugar hvort það séu takmarkanir á víddum sem hindra breytinguna. Villuleita víddarleiðréttingu
  8. Kerfið stofnar verk til að framkvæma víddarleiðréttingu. Verk tímasett
  9. Til að fylgjast með keyrslunni er hægt að velja Færsla - Ferill Víddarleiðréttingar. Drög að víddarleiðréttingu
  10. Ef keyrslan hefur skilað villu, er hægt að velja Sýna villur. Villuboð
  11. Hægt er að fara til baka í víddarbreytingu og velja Enduropna. Drög að víddarleiðréttingu
  12. Hægt er að velja línu við breytinguna sem á að hætta við og velja Bakfæra breytingu. Drög að víddarleiðréttingu
  13. Nú eru drögin eingöngu með breytingu á vídd Verkefni og hægt að staðfesta aftur. Drög að víddarleiðréttingu
  14. Nú er víddarleiðrétting staðfest og hægt að velja Keyra. Drög að víddarleiðréttingu
  15. Þá verður víddarleiðréttingin fullkláruð. Víddarleiðréttingar
  16. Nú er hægt að skoða víddir á fjárhagsfærslu og sjá breytingingar. Víddasamstæðufærslur