Skip to content
Guide

Search the Guide

Enter a query to search the Guide.

Íslenska
Menu

This page is not yet available in English. You are reading the Icelandic version.

Read in Icelandic
On this page

Grunnstillingarpakkar

Grunnstillingarpakkar eða Rapidstart eins og áður var kallað eru notaðir til að lesa inn gögn auðveldlega í kerfinu.

Annað hvort er um innlestur á gögnum að ræða þar sem gögnin voru ekki til staðar, eða breytingar á gögnum sem þarf að lesa inn í kerfinu. T.d. fylla kóti. Hér verður tekið dæmi um innlestur á viðskiptamannaskrá úr Excel skjali með grunnstillingarpakka.

Lesa inn ný gögn

  1. Opna Grunnstillingarpakkar. Grunnstillingarpakkar
  2. Velja Nýtt. Kort grunnstillingarpakka
  3. Fylla í reitina Kóti og Sendingarnafn.
  4. Setja hak í reitinn Útiloka grunnstillingartöflur þannig að kerfið muni ekki bæta við stillingartöflum í pakkanum.
  5. Velja kóti töflu í línum eins og á að vinna með, t.d. 18 Viðskiptamaður.
  6. Svara nei við spurningu um að athuga tengdar töflur.
  7. Hér sést að það eru 106 reitir í töflunni og 26 viðskiptamenn skráðir í töflunni.
  8. Velja Pakki - Flytja út í Excel. Flytja út í excel
  9. Excel vinnublaðið er flutt út. Excel
  10. Ef það á að bæta við viðskiptamönnum þá er best að eyða línunum og fylla aftur með nýjum viðskiptavinum. Athugið að einungis línurnar með bakgrunni í bláu og hvítu eru lesin inn. Hér er dæmið um hvernig hægt er að fylla inn með nýjum viðskiptavini. Excel
  11. Opna aftur grunnstillingarpakkann og velja Pakki - Flytja inn úr Excel og velja svo Excel skjalið. Flytja inn úr excel
  12. Velja Import í forskoðun á innfluttum skilgreiningarpakka. Forskoðun á innfluttum skilgreiningarpakka
  13. Fjöldi sendingarskýrslna er orðinn 2 í grunnstillingarpakkanum. Kort grunnstillingarpakka
  14. Velja Vinnsla - Nota pakka. Nota gögn úr pakka
  15. Ef engin villa finnst eru færslur staðfestar sem settar voru inn. Færslur settar inn
  16. Nú er fjöldi sendingarskýrslna orðinn 0 og fjöldi gagnagrunnsfærslna hefur hækkað um 2 í 28 viðskiptamenn. Kort grunnstillingarpakka

Lesa inn breytt gögn

  1. Opna Grunnstillingarpakkar. Grunnstillingarpakkar
  2. Velja Nýtt. Kort grunnstillingarpakka
  3. Fylla í reitina Kóti og Sendingarnafn.
  4. Setja hak í reitinn Útiloka grunnstillingartöflur þannig að kerfið mun ekki bæta við stillingartöflum í pakkann.
  5. Velja kóti töflu í línum eins og á að vinna með, t.d. 18 Viðskiptamaður.
  6. Svara nei við spurningu um að athuga tengdar töflur.
  7. Hér sést að það eru 106 reitir í töflunni og 26 viðskiptamenn skráðir í töflunni.
  8. Velja Pakki - Flytja út í excel. Flytja út í excel
  9. Excel vinnublaðið er flutt út. Excel
  10. Nú á að breyta kóti greiðsluskilmála á öllum viðskiptamönnum í LM líðandi mánuð. Excel
  11. Opna aftur grunnstillingarpakkann og velja Pakki - Flytja inn úr Excel og velja svo Excel skjalið. Flytja inn úr excel
  12. Velja Import í forskoðun á innfluttum skilgreiningarpakka. Forskoðun á innfluttum skilgreiningarpakka
  13. Fjöldi sendingarskýrslna er orðinn 28 í grunnstillingarpakkanum þar sem breytingar hafa verið gerðar á öllum viðskiptamönnum í Excel skjalinu. Kort grunnstillingarpakka
  14. Velja Vinnsla - Nota pakka. Nota gögn úr pakka
  15. Ef engin villa finnst eru færslur staðfestar sem settar voru inn. Færslum breytt
  16. Nú er fjöldi sendingarskýrslna orðinn 0 og en fjöldi gagnagrunnsfærslna er áfram 28 viðskiptamenn. Kort grunnstillingarpakka

Afmarka gögn á nokkrum reitum

  1. Ef það á að lesa inn eða breyta gögnum bara á nokkrum reitum, er hægt að afmarka á þeim þannig að Excel skjal sýni bara þá reiti sem notandinn vill vinna með.

  2. Tökum dæmi um viðskiptamann með reitunum Bókunarflokkur viðskiptamanns og Kóti greiðsluskilmála.

  3. Opna grunnstillingarpakka og smella á fjöldi tiltækra svæða. Það er fjöldi reita í töflunni Viðskiptamenn. Kort grunnstillingarpakka

  4. Pakkareitir grunnstillingar opnast og sýnir alla reitir sem í boði eru. Pakkareitir grunnstillinga

  5. Velja Breyta lista og svo Fjarlægja innifalið. Hökin í reitunum Innifalið svæði hreinsast. Pakkareitir grunnstillinga

  6. Haka í reitinn sem á að lesa inn. Pakkareitir grunnstillinga

  7. Athugið að hægt er að flytja reiti upp og niður á listanum til að breyta röðun á Excel skjalinu.

  8. Loka gluggann og velja Pakki - Flytja út í Excel.

  9. Excel vinnublaðið sýnir núna einungis 3 reiti, Númer viðskiptamanns, Bókunarflokkur viðskiptamanns og Kóti greiðsluskilmála.

    Excel

Vinna úr villum eftir innlestri í grunnstillingapakka

Nú veljum við kóti greiðsluskilmála sem er ekki til í Business Central, t.d. 30D.

  1. Reynum að lesa aftur inn Excel skjalið í grunnstillingapakka.
  2. Villur finnast þegar við keyrum aðgerðina Vinnsla - Nota pakka. Villur fundust
  3. Grunnstillingarpakki sýnir fjölda villna. Kort grunnstillingarpakka
  4. Velja Pakki - Sýna villur. Villur í grunnstillingu pakka
  5. Ef um fáa færslur er að ræða, er hægt að smella á Færslukenni og handleiðrétta Kóti greiðsluskilmála, t.d. í LM og smella svo á Í lagi. Pakkafærslur grunnstillingar
  6. Þegar allar færslur hafa verið breyttar, er hægt að velja aftur Vinnsla - Nota pakka og sjá hvort keyrslan skilar árangri.
  7. Annars er hægt að leiðrétta Excel skjal og lesa inn aftur og nota pakka aftur til að ná árangri. Velja að svara Já við spurningunni um að yfirskrifa færslur sem eru nú þegar í grunnstillingarpakka. Yfirskrifa færslur

Flytja út og inn pakka

  1. Ef það á að nota sömu pakka með sömu gögn í öðru fyrirtæki í grunninum er hægt að flytja út pakka. Velja Vinnsla - Flytja út pakka. Flytja út pakka
  2. Pakkinn er kominn í Downloads.
  3. Opna hin fyrirtækin, leita að grunnstillingar pakkar og velja Vinnsla - Flytja inn pakka. Flytja inn pakka
  4. Velja Vinnsla - Nota pakka.
  5. Ef engar villur eru, eru núna allir viðskiptamenn frá öðru fyrirtæki stofnaðir í hinu fyrirtækinu.