Skip to content
Guide

Search the Guide

Enter a query to search the Guide.

Íslenska
Menu

This page is not yet available in English. You are reading the Icelandic version.

Read in Icelandic

Útlit fylgiskjala viðskiptamanna

Hægt er að nota mismunandi útlit fylgiskjala fyrir viðskiptamenn og lánardrottna. T.d. er hægt að stilla þannig að viðskiptavinur A fái útliti A en viðskiptavinur B fái útliti B. Hér verður fjallað um útlit fylgiskjala viðskiptamanna en hægt er að setja upp það sama fyrir lánardrottna.

  1. Opna Viðskiptamannaspjald. Viðskiptamannaspjald
  2. Opna Tengt - Viðskiptamaður - Útlit fylgiskjals. Útlit fylgiskjals
  3. Velja notkun, t.d. Reikningur.
  4. Velja kenni skýrslu t.d. 1306
  5. Velja lýsingu á sérstilltu útliti, t.d. Rautt.
  6. Skrá netfang viðskiptamanns fyrir þessa skýrslu. Kerfið heimilar að senda mismunandi útlit skýrslu á mismunandi netföng fyrir sama viðskiptamann. Hægt er að nota aðgerðina Velja netfang úr tengiliðum til að skrá útlit fylgiskjals per tengilið. Útlit fylgiskjals
  7. Hægt er að nota útlit fylgiskjals til að senda tilboð, reikninga, kreditreikninga, áminningar, viðskiptamannayfirlit o.fl.