Skip to content
Guide

Search the Guide

Enter a query to search the Guide.

Íslenska
Menu

This page is not yet available in English. You are reading the Icelandic version.

Read in Icelandic

Breyta Word útliti

Word skýrslum er hægt að breyta auðveldlega í Word og flytja nýja útlitið aftur inn í Business Central. Til að geta unnið með Word skýrslur þarf að vera búið að bæta við Developer möguleika í valmyndinni. Hér verður tekið sölureikning sem dæmi um Word útlit.

  1. Opna sérsniðið skýrsluútlit. Sérsniðið skýrsluútlit
  2. Velja Nýtt. Setja inn forsniðið útliti fyrir skýrslu
  3. Velja skýrslunúmer, t.d. 1306.
  4. Haka í Setja Word-útlit og velja Í lagi.
  5. Nú er komið afrit af forsniðnu útlit í listanum en athugið að það er ekki hakað í reitinn Innbyggt. Sérsniðið skýrsluútlit
  6. Velja Útlit - Flytja út útlit.
  7. Word skjalið er núna aðgengilegt í Downloads.
  8. Vista það á tölvuna.
  9. Opna Word skjalið og leyfa breytingar. Word útlit
  10. Velja Developer - XML Mapping.
  11. Í Developer glugga, í reitnum Custom XML part, velja microsoft-dynamics-nav/reports/Standard-sales-invoice/1306
  12. Þá birtast allir reitir sem eru í boði fyrir reikningshausinn og línurnar.
  13. Núna er hægt að bæta, breyta leturgerð, færa reiti o.s.frv. á Word útlitið.
  14. Vista breyttu útliti.
  15. Opna aftur Sérsniðin skýrsluútliti og velja Útlit - Flytja inn útlit. Velja breytta skjalið. Flytja inn Word skjal
  16. Velja Útlit - Uppfæra útlit.
  17. Hægt er að velja Keyra skýrslu til að forskoða eða prenta nýja útlitið á sölureikningi.
  18. Nú ætti nýja útlitið að vera komið inn fyrir sölureikning.