Hoppa yfir í efni

Leiðrétta reikning

Hér verður fjallað um leiðréttingu á sölureikningi. Svipuð aðgerð er til fyrir innkaupareikning.

Leiðrétta:

  1. Opna bókaðan sölureikning og velja Aðgerðir - Leiðrétta - Leiðrétta. alt text
  2. Með því að velja Leiðrétta verður bókaði reikningurinn kreditfærður og nýr reikningur verður búinn til svo hægt sé að gera leiðréttinguna. Svara Já við spurningunni. alt text
  3. Ef bókaður sölureikningur er ekki lengur opinn (jafnaður að fulla með greiðslu t.d.) þá er ekki hægt að nota aðgerðina Leiðrétta og þarf þá að stofna kreditreikning handvirkt. Sjá neðar.
  4. Bókaður sölukreditreikningur jafnast sjálfkrafa við bókaðan sölureikning þannig að eftirstöðvar eru 0.
  5. Breyta nú stofnaðan sölureikning og bóka hann. Þar með er búið að leiðrétta sölureikninginn.

Hætta við:

  1. Opna bókaðan sölureikning og velja Aðgerðir - Leiðrétta - Hætta við. alt text
  2. Með því að velja Hætta við verður sölukreditreikningur búinn til og bókaður til að bakfæra bókaðan sölureikning. Svara Já við spurningunni. alt text
  3. Bókaður sölukreditreikningur jafnast sjálfkrafa við bókaðan sölureikning þannig að eftirstöðvar eru 0.

Stofna kreditreikning handvirkt:

  1. Stofna sölukreditreikning og velja Undirbúa - Afrita skjal. alt text
  2. Velja Bókaður sölureikningur og viðeigandi númer. Haka í Taka haus með til að afrita upprunaleg reikninginn. Velja Í lagi. alt text
  3. Sölukreditreikningurinn er núna fylltur út með öllum upplýsingum frá upprunalega reikningnum. Efst í línunum er vísað í reikningsnúmerið auk þess sem það er fyllt út í jöfnunarnúmeri reikningsins. Nú má kreditfæra að fullu eða breyta kreditreikning til að kreditfæra að hluta. alt text
  4. Bóka sölukreditreikninginn.