Fara yfir pöntun úr vefverslun
Þegar vefverslun sendir pöntun til Business Central verður til sölupöntun. Þú ferð yfir hana og vinnur síðan úr henni samkvæmt venjulegu söluferli fyrirtækisins.
Tilgangur
Staðfesta að vörur, magn, viðskiptamaður og gjöld séu rétt áður en pöntunin er afhent eða bókuð.
Forsendur
Pöntunin hefur verið send úr vefverslun. Greiðslu- og afhendingarmátar og tenging viðskiptamanns eru rétt stillt.
Skref
- Finndu móttekna pöntun í sölupöntunum Business Central. Notaðu pöntunarnúmer til að bera hana saman við vefpöntunina, ekki eingöngu röðun eftir nýjustu færslu.
- Yfirfarðu viðskiptamann og afhendingarupplýsingar.
- Yfirfarðu vörunúmer, magn, verð, afslætti og VSK. Athugaðu sérstaklega pantanir með afbrigðum.
- Athugaðu greiðsluhátt, afhendingarmáta og sendingarkostnað.
- Berðu heildarupphæð saman við vefpöntunina áður en þú heldur áfram með afhendingu og bókun.
Niðurstaða
Þú hefur yfirfarna sölupöntun, ekki sjálfkrafa bókaðan reikning. Athugasemdir um vinnslustöðu birtast aðeins ef það hefur verið virkjað í uppsetningu. Í Vefverslun pantanir má sjá pöntunarnúmer og Staða í vefverslun, svo sem Í bið, Hætt við eða Staðfest.
Ef eitthvað fer úrskeiðis
Staðfesting eða afpöntun á vefnum er ekki það sama og bókun eða bakfærsla í Business Central. Ef pöntunin vantar eða upphæðir stemma ekki, sjá Aðstoð. Athugaðu hvort pöntunin sé þegar komin áður en sending er endurtekin.