Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Flokka vörur og fylla út eiginleika

Þú notar flokka til að raða vörum í vefverslun og vörutegundir til að skrá sambærilega eiginleika. Fyrir pappír gætu eiginleikarnir til dæmis verið hæð, breidd og þykkt.

Tilgangur

Gera vöruna auðfundna og halda eiginleikum sambærilegra vara samræmdum.

Forsendur

Vefvara er til. Í vefuppsetningu hefur verið ákveðið hvort vefurinn notar sérstaka vefflokka eða vöruflokkun Business Central.

Skref

  1. Ef notaðir eru vefflokkar skaltu opna Vefverslun Vefflokkar. Skráðu lýsingu, yfirflokk og röðun; veldu sniðmát og myndir ef vefurinn notar það.
  2. Skráðu vefbirtingu flokksins á réttan vef. Ef notuð er vöruflokkun Business Central eru veftextar flokksins viðhaldnir í Vefverslun Upplýsingar um flokk.
  3. Opnaðu vefvöruna og tengdu viðeigandi vefflokka í flokkunarhluta hennar.
  4. Veldu Vörutegundanafn. Vörutegundin skilgreinir hvaða eiginleika þarf að fylla út.
  5. Veldu Gildi eiginleika og skráðu gildi fyrir viðeigandi línur.
  6. Til að nota sömu gildi og á annarri vöru skaltu velja Afrita eiginleika frá annari vöru og velja vöru af sömu vörutegund.
  7. Eftir samstillingu skaltu athuga flokkun og eiginleika á vefnum.

Niðurstaða

Varan hefur skráða flokkun og eiginleikagildi. Stillingar vörutegundar ráða meðal annars hvort eiginleiki birtist í eiginleikatöflu, birtist tómur og sé leitanlegur.

Viðvörun

Afritun kemur í stað fyrri eiginleika á viðtökuvörunni. Breyting á vörutegund endurstofnar einnig eiginleikalínur. Yfirfarðu gildin eftir breytingu.

Ef eitthvað fer úrskeiðis

Ekki tengja eiginleika vöru við hana sjálfa. Ef afritun stöðvast eða gögn vantar, sjá Aðstoð.