Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Fyrstu skref

Byrjaðu hér þegar tengja á vefverslun við Business Central. Markmiðið er að birta eina vöru, staðfesta hana á vefnum og fara yfir fyrstu mótteknu pöntunina.

Yfirlit

Viðbótin og vefverslun þurfa að vera uppsettar, með virkri tengingu og aðgangi að viðeigandi Business Central fyrirtæki. Fáðu kerfisstjóra til að staðfesta tenginguna áður en þú breytir vörugögnum.

Hvernig þetta virkar

Þú undirbýrð vöruna í Business Central og velur vefbirtingu. Vefverslunin sækir gögnin við samstillingu. Þegar pöntun berst um tenginguna verður til sölupöntun sem þarf að yfirfara.

Uppsetning í réttri röð

  1. Ljúktu við grunnuppsetningu, þar á meðal viðhengi, viðskiptamann og vefi.
  2. Stilltu greiðslu- og afhendingarmáta sem vefverslunin notar.
  3. Gakktu úr skugga um að vara sé til í Business Central og að flokkun hennar sé rétt.

Fyrsta verkið

Stofnaðu eina vefvöru og birtu hana. Staðfestu bæði skráða birtingu í Business Central og vöruna sjálfa á vefnum áður en fleiri vörur eru birtar. Þegar fyrsta pöntunin berst skaltu yfirfara hana.

Ávinningur

Með einni vöru fyrst sérðu hvort vefbirting, myndir og samstilling virka saman. Ef varan birtist ekki skaltu nota Aðstoð.