Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Stofna vefvöru og birta á vef

Þegar þú vilt selja vöru á vefnum stofnarðu vefvöru fyrir hana og tengir hana við réttan vef. Vefbirtingin er skráð í Business Central; samstilling sér um flutninginn til vefverslunar.

Tilgangur

Birta valda vöru á einum eða fleiri vefjum án þess að stofna nýtt vörunúmer.

Forsendur

Skref

  1. Opnaðu Vefverslun Vörulisti og stofnaðu nýja færslu.
  2. Veldu vörunúmerið. Skráðu Vefheiti, Veffyrirsögn, Veflýsing og eftir þörfum Stutt Veflýsing.
  3. Bættu við flokkun og eiginleikum og myndum eftir þörfum.
  4. Farðu aftur í vörulistann og veldu vöruna. Veldu Birta vöru á vef og vefinn sem á að birta á.
  5. Opnaðu vefvöruna og skoðaðu skráða birtingu með Birta á vef.
  6. Eftir samstillingu skaltu opna vefverslunina og athuga heiti, lýsingu, myndir, verð og birgðastöðu vörunnar.

Niðurstaða

Vefvaran hefur birtingarfærslu fyrir valinn vef. Hægt er að tengja sömu vöru við fleiri vefi. Staðan Ok! segir að skilgreindir nauðsynlegir reitir séu útfylltir, ekki að vefverslunin hafi tekið við vörunni.

Næst getur þú bætt við afbrigði.

Ef eitthvað fer úrskeiðis

Ef varan sést ekki, vefurinn finnst ekki eða þú færð Hætt við, sjá Aðstoð. Ekki stofna aðra vöru til að leysa samstillingarvanda.