Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Senda tíma og leiðrétta hafnanir

Þú sendir nýjar tímaskráningar til ábyrgðaraðila þegar þú hefur farið yfir þær. Hafnaðri skráningu leiðréttir þú í spjaldinu og athugar síðan hvort hún sé komin aftur í bið eftir samþykkt.

Sviðsmynd

Hjá Dæmi ehf. eru tveir tímar skráðir 26. október 2026 á verkefni 1000 og verkhluta 10. Þú hefur lokið yfirferð dagsins og vilt senda þá til samþykktar.

Áður en þú byrjar

Skráðu tímana með lýsingu, verkefni og verkhluta. Ábyrgðaraðili þarf að vera rétt stilltur. Skráningar á verkhluta án samþykktarkröfu eru þegar samþykktar; persónulegur tími fer ekki í þessa sendingu.

Skref fyrir skref

  1. Opnaðu Tímaskráningadagatal og veldu Senda til samþykktar. Í listanum Tímaskráningar heitir aðgerðin Senda í samþykkt.
  2. Veldu lokadag í Ný dagseting vinnuloka og farðu yfir sundurliðun tímanna.
  3. Staðfestu. Nýjar, ópersónulegar skráningar til og með lokadeginum eru athugaðar og villulausar skráningar fara í bið eftir samþykkt.
  4. Ef villulisti opnast skaltu leiðrétta línurnar þar og senda aftur. Aðrar, villulausar línur kunna þegar að vera komnar til samþykktar.

Leiðrétta höfnun

Opnaðu Hafnanir í dagatalinu og lestu athugasemd samþykkjanda. Smelltu á lýsingu til að opna tímaskráninguna, leiðréttu hana og vistaðu. Þegar starfsmaður sem er ekki ábyrgðaraðili breytir hafnaðri skráningu fer hún aftur í bið eftir samþykkt og gamla höfnunin hreinsast. Athugaðu stöðuna; notaðu sendingaraðgerðina fyrir línur sem enn eru nýjar.

Við opnun dagatals eða lista færðu tilkynningu um hafnanir. Tölvupóstur er einnig sendur ef tilkynningar eru settar upp.

Niðurstaða

Villulausir tímar eru í bið eftir samþykkt og sjást hjá ábyrgðaraðilanum. Vinnulokadagsetning forðans er uppfærð; ef villur finnast getur hún færst aftur fyrir fyrsta villudaginn. Sendingin bókar hvorki tíma né reikning.

Næst: Samþykkja tíma.

Ef eitthvað fer úrskeiðis

Skilaboðin Ekki tókst að senda til samþykkis fylgja villulista. Skoðaðu hann áður en þú sendir aftur; sjá Sendingu og samþykktir.