Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Aðstoð

Leitaðu að skilaboðunum sem þú sérð eða því verki sem stöðvaðist. „…“ stendur fyrir breytilegt gildi, til dæmis notanda eða verkefnisnúmer. Ef þú þarft aðstoð skaltu varðveita villutextann og segja hvaða aðgerð þú varst að framkvæma.

Skráning og uppsetning

SkilaboðSkýringHvað á að gera
Enginn forði fannst fyrir notanda …Notandinn er ekki tengdur við forða.Láttu kerfisstjóra tengja Tímaskráningar notandi á forðaspjaldinu og virkja Notar tímaskráningu. Sjá Stillingar.
Lýsing má ekki vera lengri en 100 stafir. Núverandi lengd: …Lýsing er of löng.Styttu hana í mest 100 stafi.
Fjöldi má ekki vera núll eða neikvæður.Magn á spjaldinu er ekki stærra en 0.Athugaðu Tími frá, Tími til og Magn áður en þú vistar.
Ekki er hægt að breyta skráningu sem að hefur verið bókuð! / Ekki er hægt að eyða skráningu sem að hefur verið bókuð!Tíminn er þegar bókaður í verkefnabókhaldi.Ekki reyna að færa hann í dagatalinu. Farðu yfir leiðréttingu í verkefnabókhaldi með bókara.
Ekki er hægt að breyta skráningu sem að hefur verið sameinuð / Ekki er hægt að eyða skráningu sem að hefur verið sameinuðRukkanlegt magn línunnar hefur verið sameinað annarri skráningu.Finndu línuna sem hélt rukkanlega magninu og farðu yfir hana með samþykkjanda.
Þessi virkni er ekki virkjuð. Vinsamlegast hafðu samband við stjórnanda til að virkja hana.Jira, tillögur eða markmið eru óvirk.Kerfisstjóri athugar Virknis stjórnun og heimildir. Sjá Stillingar.

Sending og samþykktir

SkilaboðSkýringHvað á að gera
Ekki tókst að senda til samþykkisEin eða fleiri nýjar línur eru með villu. Aðrar línur geta þegar verið komnar í bið eftir samþykkt.Opnaðu villulistann, leiðréttu línurnar og sendu aftur.
Skráning þarf að innihalda lýsinguLýsing er tóm.Skráðu hvað var unnið.
Skráning þarf að innihalda númer verkefnis.Verkefni vantar.Veldu verkefni eða lagaðu Jira vörpun.
Skráning þarf að innihalda númer verkhluta.Verkhluta vantar.Veldu bókanlegan verkhluta á réttu verkefni eða lagaðu Jira vörpun.
Skráning þarf að innihalda ábyrgðaraðila, athugið hvort að verkefni … sé með fyllt út í reitinn "Verkefnastjóri"Samþykktaraðferðin skilar engum ábyrgðaraðila.Athugaðu verkefnisstjóra eða leiðbeinanda forðans eftir aðferð verkhlutans. Sjá Stillingar.
Þú hefur ekki heimild til að skoða þessa tímaskráningu. Þú getur breytt verkefnisstjóra eða yfirmann forða eftir því hvernig verkefnið er sett upp.Notandinn er ekki ábyrgðaraðili skráningarinnar.Láttu réttan ábyrgðaraðila yfirfara eða láttu kerfisstjóra leiðrétta tenginguna.
Þú verður að gefa ástæðu fyrir höfnun / Þú verður að setja inn ummæli áður en þú getur neitað tímaskráningunniHöfnun var staðfest án athugasemdar.Skrifaðu hvað starfsmaður þarf að leiðrétta.
Þetta svæði er aðeins hægt að breyta þegar ástæðan fyrir breytingu á magni er fyllt út.Uppsetning krefst ástæðukóða.Fylltu út Ástæða fyrir breytingu á magni áður en þú breytir magninu.
Rukkanlegt magn má ekki breytast fyrir verkefni með "Beita notkunartengingu" virkjaðNotkunartenging verkefnisins bannar breytinguna.Haltu magninu óbreyttu og farðu yfir reikningsfærslufyrirkomulag verkefnisins með bókara.
Þú verður að velja að minnsta kosti 2 tímaskráningar til að sameina.Aðeins ein eða engin lína er valin.Veldu tvær eða fleiri skráningar.
Allar valdar tímaskráningar verða að hafa stöðu "Í bið"Að minnsta kosti ein valin lína er ekki í bið eftir samþykkt.Takmarkaðu valið við línur í bið.
Cannot unify time registrations with different job/task combinations.Verkefni eða verkhluti er ólíkt milli lína. Þessi skilaboð birtast á ensku.Veldu aðeins línur á sama verkefni og verkhluta. Sjá Samþykkt tíma.

Færslubók

SkilaboðSkýringHvað á að gera
Gat ekki bókað þar sem að tímaskráning (…) fannst ekkiTengd tímaskráning finnst ekki lengur.Stöðvaðu bókunina og láttu bókara athuga tenginguna áður en línan er endurgerð.
Ekki er hægt að klára bókun þar sem færslubókarlína verkefnis "…".\Línan hefur ekki sama magn (…) og magn (…) samþykktrar tímaskráningar: (…)Unnið magn í færslubók og tímaskráningu er ekki eins.Berðu saman báðar línur og veldu leiðréttingu eftir því hvor er rétt. Rukkanlegt magn er sérstakt gildi. Sjá Færslubók.

Tillögur og Jira

SkilaboðSkýringHvað á að gera
Viðbót er ekki tilbúin, reyndu aftur innan skammsInnskráningarstýring tillagna er ekki tilbúin.Bíddu stutta stund og reyndu aftur.
Enginn aðgangslykill fyrir tímaskráningar þjónustu fannst. Vinsamlegast skráðu þig inn í tímaskráningar þjónustuna fyrst.Tillöguþjónustan er ekki tengd fyrir notandann.Veldu Innskráning í þjónustu tillagna. Sjá Tillögur.
Enginn Jira aðgangslykill fannst í einangruðu geymslu. Vinsamlegast auðkenndu þig aftur.Innflutningur frá Jira hefur ekki gilda innskráningu.Skráðu þig aftur inn í Jira á uppsetningarsíðunni.
Auðkenning mistókst við að senda beiðni til …. Vinsamlegast skráðu þig inn aftur og reyndu aftur.Innskráning í Jira rann út eða er ógild.Skráðu þig inn aftur og endurtaktu sóknina.
Beiðni til … var takmörkuð. Vinsamlegast reyndu aftur síðar.Jira takmarkar fjölda beiðna.Bíddu og reyndu aftur; kerfisstjóri skoðar tíðni vinnsluraðar ef þetta endurtekur sig.
Engar tillögur fundust fyrir valda dagsetninguEngin tillaga fannst í handvirkri sókn.Athugaðu dagsetningu og valdar gagnaveitur. Skráðu tímann handvirkt ef þarf.
Engar tillögur fundust. Sumar gagnaveitur mistókust: …Gagnaveita brást við sókn.Athugaðu tenginguna við nefnda þjónustu og reyndu aftur.
Sjálfvirkar tillögur mistókust: … / Sumar gagnaveitur tillagna mistókust: …. Tillögur kunna að vera ófullkomnar.Sjálfvirk keyrsla eða hluti gagnaveitna brást.Skoðaðu síðustu villu með kerfisstjóra, endurnýjaðu innskráningu ef þarf og yfirfarðu tímann sem vantar.
Sjálfvirkar tillögur hafa ekki verið virkjaðarReynt var að stöðva vinnslu án gildrar vinnsluraðarfærslu.Stofnaðu hana aðeins ef nota á sjálfvirkar tillögur. Sjá Tillögur.

Markmið

SkilaboðSkýringHvað á að gera
Tilgreina verður mánuð frá. / Tilgreina verður mánuð til.Upphaf eða lok tímabils vantar.Fylltu út báðar mánaðardagsetningar.
Mánuður frá getur ekki verið á eftir mánuði til.Upphaf er á eftir lokum.Leiðréttu tímabilið og stofnaðu markmiðin aftur.

Vandamál án skilaboða

EinkenniSkýringHvað á að gera
Spjaldið lokast ekki þegar þú staðfestir.Lýsing er tóm eða aðeins bil.Skráðu lýsingu og staðfestu aftur.
Skráning fer ekki til samþykktar.Sending tekur aðeins nýjar, ópersónulegar línur til og með lokadegi.Athugaðu dagsetningu og stöðu. Línan getur þegar verið samþykkt eða í bið.
Engin færslubókarlína verður til.Skráningin er ekki samþykkt eða sameinuð, er persónuleg, bókuð, utan afmarkana eða á þegar tengda línu.Athugaðu skilyrðin og leitaðu í öðrum færslubókarkeyrslum áður en þú keyrir aftur.
Jira mál fær ekkert verkefni.Vörpun vantar eða fyrsta sérsniðna gildið passar ekki.Lagaðu vörpunina og athugaðu tímaskráninguna aftur.
Engar sjálfvirkar tillögur berast.Innskráning er óvirk eða vinnsluröðin keyrir ekki.Athugaðu innskráningu, síðustu villu, stöðu og tímasetningu vinnsluraðar.
Markmið vantar eða eru röng.Mánaðarlínu vantar eða dagatal, hlutföll eða fjarvera eru röng.Stofnaðu mánaðarlínurnar sem vantar með Stofna markmið. Athugaðu grunninn og endurreiknaðu fjarveru og markmiðstíma eftir þörfum.