Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Uppsetning taflna

Hér er hægt að velja hvaða Business Central töflur á að samstilla við ytri gagnageymslur og stilla hvernig samstillingin fer fram. Til að opna listann er hægt að leita að „SQL Connector töflusíða" en einnig er hún aðgengileg í gegnum "Töflur til samstillingar" aðgerðir á ýmsum stöðum í kerfinu.

Töflulisti

ToflurListi

DálkurLýsing
KóðiEinkvæmt auðkenni fyrir þessa töfluuppsetningu
LýsingLýsandi heiti töflunnar
Töflunr.Númer Business Central töflunnar sem samstillt er
Heiti töfluKerfisheiti töflunnar (sjálfvirkt)
TöflutextiHeitið sem notað er sem töfluheiti í ytri gagnageymslu (breytanlegt, sérstafir hreinsuð sjálfkrafa)
Bókamerki færsluInnra eftirlitsgildi (Row Version) sem gefur til kynna stöðu samstillingar. Færslum breytt eftir þetta gildi verða fluttar út í næstu samstillingu.
Færslu síðast breyttSýnir hvenær færslan sem svarar til breytingarstimpilsins var síðast breytt.

Upplýsingasvæðið til hægri (FactBox) sýnir samstillingartölfræði fyrir valda töflu.

Samstillingatolfraedi

Töfluspjald

Smellt er á kóða færslu í listanum til að opna spjaldsíðu.

TofluSpjald

Almennt

ReiturLýsing
KóðiEinkvæmt auðkenni fyrir þessa töfluuppsetningu
LýsingLýsandi heiti töflunnar
Töflunr.Númer Business Central töflunnar sem samstillt er. Notið uppflettingu til að skoða tiltækar töflur. Við val býður kerfið upp á sjálfgefin gildi (200 færslur á gagnapakka, 10.000 færslur á verk, sjálfvirka úthlutun netþjóns og sjálfvirka reitaúthlutun).
Heiti töfluKerfisheiti töflunnar (sjálfvirkt)
TöflutextiHeitið sem notað er sem töfluheiti í ytri gagnageymslu (breytanlegt, sérstafir hreinsuð sjálfkrafa)

Samstilling

ReiturLýsing
Gera virktVirkjar töfluna til samstillingar. Viðvaranir birtast ef engin netþjónauppsetning er tengd, engir reitir eru stilltir, eða töfluuppbygging hefur ekki verið búin til. Hægt er að halda áfram þrátt fyrir viðvaranir.
NetþjónakóðiHvaða netþjónauppsetningu á að nota (uppfletting á netþjónalista)
Fjöldi færslna í hverju skeytiHversu margar færslur eru settar í hvern gagnapakka (lágmark: 1). Hefur áhrif á stærð og vinnslutíma gagnapakka.
Fjöldi færslna í hverju verkiHámarksfjöldi færslna í hverri keyrslu verkraðar (lágmark: 1). Takmarkar hversu mikla vinnu ein keyrsla framkvæmir, einnig við þvingaða fulla samstillingu.
Bókamerki færsluInnri tímastimpill (Row Version) sem gefur til kynna stöðu samstillingar. Samstillingin flytur út færslur sem hafa hærri tímastimpil en þetta gildi í næstu keyrslu.
Færslu síðast breyttSýnir hvenær færslan sem svarar til breytingarstimpilsins var síðast breytt. Hægt er að breyta þessu gildi til að færa samstillingarbendinn aftur í tíma.
Þvinga fulla samstillinguÞegar kveikt er á þessu sleppir næsta keyrsla töflusíum, setur bókamerki færslu í 0 og setur aðgerð til að tæma SQL-töfluna í vinnsluskrá. Hún vinnur þó ekki fleiri færslur en Fjöldi færslna í hverju verki leyfir. Flaggið er tekið af þegar vinnslan hefst, áður en aðgerðirnar eru sendar; síðari keyrslur nota venjulegar síur.

Skema

ReiturLýsing
Uppbygging töflu búin tilSýnir hvort töfluuppbygging hefur verið merkt sem stofnuð. SQL Connector merkir hana þegar skipun um stofnun töflu er sett í vinnsluskrá; það staðfestir ekki að skipunin hafi verið send á ytri gagnagrunninn.
Síðasta eyðingarfærslaNúmer síðustu unninnar eyðingarskráarfærslu

Ítarlegt

ReiturLýsing
Hafa fyrirtæki í lykliTekur BC fyrirtækjaheitið með í frumlykil færslu. Hægt að nota í umhverfum með mörgum fyrirtækjum þar sem sama taflan er flutt út frá fleiri fyrirtækjum í sama gagnagrunn
Flytja Enum/Valkost sem textaÞegar virkt eru valkosta-/upptalningarreitir fluttir sem læsilegur texti í stað tölugilda
Sleppa sjálfgefnum gildum við innsetninguÞegar virkt er sleppir kerfið reitum með sjálfgefin gildi úr INSERT-skipunum. Þetta minnkar gagnapakkann en ytri taflan þarf þá að skilgreina sín eigin sjálfgefnu gildi.

Reitir

Neðst á spjaldinu birtist listi yfir reiti sem fluttir verða út. Sjá nánar í Uppsetning reita.

Reitir

Samstillingartölfræði (FactBox)

Upplýsingasvæðið sýnir rauntímatölur fyrir valda töflu líkt og á listasíðunni.

Samstillingatolfraedi

Framvinda

MælistærðLýsing
HeildarfærslurHeildarfjöldi í BC töflu
Samstilltar færslurFærslur sem þegar hafa verið fluttar út miðað við Bókamerki færslu reitinn
Færslur eftirFærslur sem á eftir að flytja út miðað við Bókamerki færslu reitinn
0DT-færslurFærslur þar sem kerfisreiturinn SystemModifiedAt = 0DT

Lotustillingar

ReiturLýsing
Fjöldi færslna í hverju skeytiRunustærð fyrir þessa töflu
Fjöldi færslna í hverju verkiFærsluhámark verks fyrir þessa töflu

Vinnsluskrá

StaðaLýsing
Í biðFærslur í bið fyrir þessa töflu
Í vinnsluFærslur í sendingu
MisheppnaðistMisheppnaðar færslur
Fyrirbyggjandi stöðvunFærslur stöðvaðar vegna þess að fyrri færsla fyrir sama pakka mistókst
LokiðFærslur sem tókust

Smellt er á hverja stöðu til að opna síaða vinnsluskrá.

Á töfluspjaldinu fyrir neðan samstillingartölfræðina eru vinnsluskrárfærslur fyrir töfluna sýnilegar með aðgengilegum færslum: Vinna úr færslu, Vinna úr öllum óunnum færslum.

Aðgerðir á töfluspjaldi

Skema

AðgerðLýsing
Búa til töfluSetur skipun um stofnun töfluuppbyggingar á tengdum netþjóni í vinnsluskrá. Aðeins sýnilegt þegar uppbygging er ekki merkt sem stofnuð undir Skema.
Bæta við dálkum sem vantarGreinir reiti sem eru í BC uppsetningu og býr til ALTER TABLE ADD skipanir fyrir ytri gagnageymsluna.

Stjórnun

AðgerðLýsing
Endurskapa töfluEyðir ytri töflunni og býr hana til aftur. Krefst staðfestingar. Endurstillir tímastimpil og eyðingarskráarbendi undir Skema.
Fjarlægja ónotaða dálkaGreinir dálka í SQL töflu sem eiga ekki lengur samsvarandi BC reiti og býr til ALTER TABLE DROP COLUMN skipanir. Sýnir staðfestingu með lista yfir dálka sem verða fjarlægðir.
Þvinga fulla endursamstillinguSetur flagg svo næsta keyrsla tæmi töfluna og flytji út öll gögn aftur.

Gögn

AðgerðLýsing
Flytja út gögnSkannar eftir breyttum færslum og raðar gagnapökkum í vinnsluskrá. Gagnapakkarnir eru ekki sendir strax. Notið „Vinna úr allar óunnar færslur" frá mælaborði eða vinnsluskrá til að senda þá. Gerist einnig sjálfkrafa með þess til gerðum vinnsluraðarfærslum.
SíurOpnar töflusíur til að takmarka hvaða færslur eru fluttar út. Sjá nánar hér
Stinga upp á lotustærðGreinir reitauppsetningu og áætlaðar færslustærðir til að mæla með bestu gildi fyrir Færslur á gagnapakka.
Forskoða stærð gagnapakkaBýr til sýnigagnapakka og gefur upp áætlaða stærð hans.