Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Vinnsluskrá og eyðingaskrá

Á þessari síðu sérðu hvað SQL Connector hefur sent til ytri gagnageymslu, hvað bíður og hvað mistókst, og hvaða eyðingar og endurnefningar bíða næstu samstillingar.

Vinnsluskrá

Vinnsluskráin er bæði hugsuð sem biðröð fyrir gagnapakka sem eiga eftir að vera sendir og saga yfir allar aðgerðir sem þegar hafa verið framkvæmdar. Fyrir stjórnendur bíður hún upp á að flytja út og eiga við skipunina sem send er til ytri gagnageymslu.

Vinnsluskra

Dálkar

DálkurLýsing
Færslunr.Einstakt sjálfhækkandi auðkenni færsla
VinnslukóðiUppsetningarkóði töflu sem færslan tilheyrir
NetþjónakóðiKóði uppsetningar netþjóns
VinnslugerðTegund aðgerðar sem send var/verður til ytri netþjóns (t.d. Insert/Update, Delete, Create Table)
Dagsetning skráningarHvenær færslan var búin til
SkráningartextiLýsing fengin úr töflusamstillingu
Stærð skipunarStærð geymdra gagnapakka í bætum
Staða vinnsluNúverandi staða: Í bið, Í vinnslu, Lokið, Misheppnaðar eða Fyrirbyggjandi stöðvun
Dagsetning vinnsluHvenær vinnsla (sending) hófst
Lokadagsetning og -tímiHvenær vinnslu lauk
Lengd vinnsluHversu langan tíma sending tók
VinnsluskilaboðSvarskilaboð frá vinnslu
Stöðukóði svarsHTTP svarkóði frá netþjóni sem sá um sendingu
Svar er árangursríktHvort HTTP svarið gefur til kynna árangur
Ástæðusetning svarsÁstæðusetning HTTP svars (t.d. OK, Unauthorized, Forbidden)
Fjöldi endurtekningaFjöldi endurtilrauna sem gerðar hafa verið á þessari færslu

Stöðuferill

Hver færsla fer í gegnum eftirfarandi stöður:

  1. Í bið: gagnapakki myndaður og í biðröð, hefur ekki verið sendur
  2. Í vinnslu: verið að senda
  3. Lokið: framkvæmd tókst
  4. Misheppnuð: sending eða framkvæmd mistókst; hægt er að endurreyna allt að hámarksfjölda endurtilrauna skv. stillingum netþjóns.
  5. Fyrirbyggjandi stöðvun: færsla er stöðvuð vegna þess að fyrri færsla fyrir sama pakka mistókst. Kerfinu er stillt á að stöðva sendingu pakka þegar villa kemur upp (sjá “Stöðva pakka við villu” í netþjónauppsetningu).

Aðgerðir

Vinnsla

AðgerðLýsing
Vinna úr færsluSendir valda vinnsluskráarfærslu til uppsetts tengds netþjóns
Vinna allar óunnar færslurSendir allar færslur í bið til tengdra netþjóna
Reyna pakka afturEndurstillir allar misheppnaðar og stöðvaðar færslur fyrir valinn pakka í Biður, svo hægt sé að vinna þar aftur

Stjórnun

Þessar aðgerðir eri í boði fyrir kerfisstjóra: notendur með skrifréttindi á netþjónauppsetningu.

AðgerðLýsing
Flytja út umslagSækir umslag gagnapakkans — JSON umslag sem inniheldur SQL skipunina og tengiupplýsingar — sem skrá
Flytja út gagnapakkaSækir hráan gagnapakka sem skrá til villuleitar
Hlaða upp gagnapakkaHleður upp gagnapakkaskrá og setur inn í fyrirliggjandi færslu.
Eyða gömlum færslumEyðir loknum og misheppnuðum færslum eldri en stilltur varðveislutími
Hreinsa allt lokiðEyðir öllum loknum færslum óháð aldri

Eyðingaskrá

Eyðingaskráin heldur sérstaklega utan um eyðingu og endurnefningu færslna í töflum sem stillt hefur verið upp fyrir samstillingu. Hún er svo notuð í næstu samstillingu til að koma skipunum um að fjarlægja færslurnar til ytri gagnageymslunnar. Slíkar skipanir eru þá eins og aðrar sýnilegar í vinnsluskránni.

Eydingaskra

Dálkar

DálkurLýsing
Færslunr.Einstakt sjálfhækkandi auðkenni
Töflunr.Númer BC töflu þar sem eyðing/endurnefning átti sér stað
AðallykillTexti aðallykils viðkomandi færslu (allt að 2048 stafir)
FærslukenniBC RecordId eyðdrar/endurnefndrar færslu
AðgerðTegund aðgerðar: Eyða eða Endurnefna
Stofnað afNotandinn sem framkvæmdi eyðingu/endurnefningu
Stofnað þannHvenær eyðing/endurnefning átti sér stað

Aðgerðir

AðgerðLýsing
Eyða gömlum færslumEyðir eyðingaskrárfærslum m.t.t. varðveislustillinga allra netþjóna. Notast er við lengsta varðveislutíma sem finnst í stillingum netþjóna.