Netþjónauppsetningin skilgreinir tengingu við ytri gagnageymslur. Töfluuppstillingar notast svo við þessar uppsetningar. Hægt er að setja upp margar tengingar til að samstilla gögn við mismunandi gagnagrunna. Til að opna listann er hægt að leita að „SQL Connector uppsetning netþjóns" eða velja "Uppsetning netþjóns" aðgerð aðgengileg á flestum síðum kerfisins.
Netþjónalisti
Listinn sýnir allar uppsettar tengingar ásamt helstu upplýsingum. Athugið að best er að eiga við þessar uppýsingar í gegnum spjaldið sem opnast þegar ýtt er á frumlykil færslu í listanum.
Dálkur
Lýsing
Frumlykill
Einstakur kóði sem auðkennir þessa tengingu (t.d. SQLDEV, PROD)
Lýsing
Frjáls lýsing á tengingunni
Hámarksfjöldi endurtekninga
Hversu oft á að reyna misheppaða sendingu aftur
Netþjónn
Slóð netþjóns
Gagnagrunnur
Heiti gagnagrunnsinns
Notandanafn
Notandanafn notað fyrir auðkenningu
App Path
Slóð Azure Function endapunkts
Treysta vottorði netþjóns
Hvort á að treysta sjálfundirrituðu vottorði (fyrir þróunarumhverfi)
Senda bilunartilkynningu til
Netfang sem fær tilkynningar um villur
Aðgerðir á listasíðu
Aðgerð
Lýsing
Prófa tengingu
Prófar tengingu við netþjón í gegnum valda flutningsaðferð
Einnig er hægt að fara beint á samstillingartöflur, vinnsluskrá, eyðingaskrá og sjálfvirkni frá listasíðunni.
Upplýsingasvæðið (FactBox) sýnir lista yfir töflur sem tengdar eru þessari netþjónauppsetningu.
Netþjónaspjald
Smellt er á frumlykil færslu í listanum til að opna ítarlegt uppsetningarspjald.
Almennt
Reitur
Lýsing
Frumlykill
Einstakur kóði sem auðkennir þessa tengingu (t.d. SQLDEV, PROD)
Lýsing
Frjáls lýsing á tengingunni
Snið gagnapakka
Snið á gagnapökkum. Sem stendur er aðeins T-SQL stutt
Flutningsaðferð
Hvernig gagnapakkar eru sendir. Sem stendur er aðeins Azure-fall stutt
Netþjónatenging
Reitur
Lýsing
Netþjónn
Slóð netþjóns
Gagnagrunnur
Heiti gagnagrunns
Notandanafn
SQL notandanafn. Skilja eftir autt ef Managed Identity er notað
Lykilorð
SQL lykilorð (geymt í öruggri geymslu, sýnt sem ***). Skilja eftir autt ef Managed Identity er notað
Treysta vottorði netþjóns
Hvort á að treysta sjálfundirritaðu vottorði (fyrir þróunarumhverfi)
Tengistrengur
Annar valkostur: slá inn fullan tengingarstreng í stað einstakra reita (geymt í öruggri geymslu)
Azure Function
Reitur
Lýsing
Slóð falls
Slóð Azure Function endapunkts (t.d. https://<function-app>.azurewebsites.net/api/ExecuteSQLCommand)
Forritslykill
API-lykill Azure Function til auðkenningar (geymt í öruggri geymslu, sýnt sem ***). Lykilinn er að finna í Azure Portal undir Function App → App Keys → Host keys (eða Function keys)
Tilkynningar & endurtekningar
Reitur
Lýsing
Senda bilunartilkynningu til
Netfang sem fær tilkynningar þegar samstilling mistekst
Tilkynningastig
Hvenær á að senda tilkynningar: Aðeins bilanir (sjálfgefið), Allt eða Ekkert
Tilkynningaaðferð
Leið tilkynninga. Sjálfgefið: Tölvupóstur
Hámarksfjöldi endurtekninga
Fjöldi endurtilrauna áður en hætt er við misheppaða sendingu
Stöðva pakka við villu
Þegar virkt eru óafgreiddar færslur fyrir pakkagerð stöðvaðar ef sú pakkagerð á þegar misheppnaðar færslur
Varðveisludagar vinnsluskrár
Hversu lengi vinnsluskráarfærslur eru geymdar. Stillt sem 0 til að slökkva á sjálfvirkri hreinsun. (sjálfgefið: 30 dagar)
Varðveisludagar eyðingaskrár
Hversu lengi eyðingaskráarfærslur eru geymdar. Stillt sem 0 til að slökkva á sjálfvirkri hreinsun. (sjálfgefið: 30 dagar)
Ítarlegar stillingar
Reitur
Lýsing
HTTP tímamörk (ms)
Hámarkstími til að bíða eftir svari frá Azure Function (sjálfgefið: 300.000 ms / 5 mínútur, lágmark: 5.000 ms)
Þjappa gagnapakka
Þegar virkt er gagnapakkinn GZip-þjappaður áður en hann er sendur
Tugabrotsnákvæmni
SQL DECIMAL precision fyrir tugabreytireiti (sjálfgefið: 38, bil: 1–38)
Tugabrotskvarði
SQL DECIMAL scale fyrir tugabreytireiti (sjálfgefið: 20, bil: 0–38)
Forsendur lotustærðar
Stillingar notaðar til að útbúa tillögur að lotustærð.
Reitur
Lýsing
Markstærð pakka (KB)
Hámarksstærð gagnapakka sem notuð er við mat á lotustærð (sjálfgefið: 4.096 KB / 4 MB, lágmark: 256 KB)
Öryggismörk %
Öryggishlutfall sem dregið er frá stærðar- og tímamörkum við útreikning (sjálfgefið: 20%, bil: 0–50%)
Flutningshraði (bæti/ms)
Áætlaður flutningshraði notaður við tímamarkatengt mat á lotustærð (sjálfgefið: 500 bæti/ms, lágmark: 50)
Sjálfgefin varalota
Sjálfgefin lotustærð þegar ekki er hægt að reikna betra gildi (sjálfgefið: 200, lágmark: 1)
Aðgerðir á spjaldi
Aðgerð
Lýsing
Prófa tengingu
Prófar tengingu við netþjón í gegnum valda flutningsaðferð
Öryggi auðkenna
Lykilorð, API-lyklar og tengistrengir eru aldrei geymdir sem hreinn texti í gagnagrunninum.
Þau eru geymd í Isolated Storage, lyklageymslu í Business Central sem er sérstaklega hugsuð fyrir leynigildi.
Viðmótið sýnir *** þegar leynigildi hefur verið sett, og auðan reit þegar ekkert er skráð en er ekki útflytjanlegt.