Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Fyrstu skref

Þessi síða leiðir kerfisstjóra í gegnum fyrstu uppsetningu á SQL Connector, frá tengingu við ytri netþjón þar til fyrstu gögnin hafa skilað sér. Hvert skref vísar á síðuna sem lýsir því nánar.

Yfirlit

Þetta þarf að vera til staðar áður en þú byrjar:

  • Ytri gagnageymsla, til dæmis Azure SQL, og upplýsingar um netþjón, gagnagrunn og auðkenni (notandanafn og lykilorð eða tengistreng).
  • Slóð og forritslykill Azure Function sem sendir skipanirnar til gagnageymslunnar.
  • Notandinn er með hlutverkið „SQL Connector gagnasamstillingarstjóri“ ef hann á að sjá mælaborðið og valmyndina.

Hvernig þetta virkar

Uppsetning með hjálp leiðir þig í gegnum flest skrefin hér að neðan. Hægt er að hætta hvenær sem er, því gögnin vistast jafnóðum.

  1. Settu upp tengingu við netþjón. Opnaðu Uppsetning með hjálp eða Uppsetning netþjóns og fylltu út Netþjónn, Gagnagrunnur, Slóð falls og Forritslykill, eða tengistreng. Athugun: Prófa tengingu sýnir grænt.
  2. Veldu töflur. Opnaðu töfluuppsetninguna og bættu við þeim Business Central töflum sem á að samstilla. Sjá Uppsetning taflna. Athugun: Taflan er með Netþjónakóði og reiti í reitalistanum. Sjá Uppsetning reita.
  3. Veldu Búa til töflu til að setja stofnunarskipunina í vinnsluskrá og hakaðu svo í Gera virkt. Athugun: Uppbygging töflu búin til er merkt þegar skipunin er sett í vinnsluskrá, en það staðfestir ekki að hún hafi borist á ytri gagnagrunninn. Skoðaðu vinnsluskrána eftir að skipunin hefur verið send og staðfestu að hún sé Lokið.
  4. Stofnaðu vinnsluröð. Í skrefi 4 í uppsetningu með hjálp eða á síðunni Sjálfvirkni er vinnsluraðarfærsla stofnuð í biðstöðu. Veldu Setja sem tilbúið til að hún fari að keyra. Athugun: Staða vinnsluraðarfærslunnar er Tilbúin.
  5. Lestu samantektina í síðasta skrefi uppsetningar með hjálp. ❌ þýðir að eitthvað vantar.

Eftir fyrstu keyrslu sérðu á mælaborðinu og í vinnsluskránni hvort færslurnar hafa stöðuna Lokið.

Ávinningur

Þegar uppsetningin er gerð í þessari röð er tengingin prófuð áður en gögn eru send, og stofnunarskipun töflunnar er sett í vinnsluskrá áður en samstilling hefst.