Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Uppfletting

Hér sérðu áhrif helstu reita þegar þú yfirfer aðgang ytri notanda. Sjá Stofna og tengja notanda fyrir skrefin og Aðstoð þegar aðgangur virkar ekki.

Yfirlit

Notandaspjaldið geymir auðkenni og lokunarskilyrði. Hlutverk tengja notandann við þær færslur sem hann kemur fram fyrir.

Notandaspjald

ReiturÁhrif og hvenær á að breytaSjálfgefið
NotandakenniAuðkennir notandann við innskráningu. Veldu kenni sem enginn annar notar.Autt við handvirka stofnun.
Fullt nafn, TölvupóstfangTengiliðaupplýsingar. Lykilorðspóstur fer á þetta netfang.Autt við handvirka stofnun.
LokaðurHafnar nýrri innskráningu þegar merkt er við. Taktu hakið af þegar aðgangur á að opnast aftur.Ómerkt.
GildistímiLokadagur aðgangs. Nýrri innskráningu er hafnað eftir þann dag.Autt: enginn lokadagur.
Hámarks tími milli innskráningarTakmarkar leyfilegan tíma frá síðustu heppnuðu innskráningu.Autt: engin slík takmörkun.
Síðasta innskráning, Síðasta heppnaða innskráningDagsetningar síðustu tilraunar og síðustu heppnuðu innskráningar.Fyllast við innskráningu.

Hlutverk og réttindi

Skoða notendahlutverk opnar tengingar við færslur í Business Central. Hlutverk ákvarðar tegund tengingar og Fyrir hönd... velur færsluna. Fyrir hönd Heiti sýnir heitið sem var sótt við valið.

Skoða notenda réttindi sýnir skráð réttindi notandans. Hvaða hlutverk og réttindi þarf ræðst af tengda vefkerfinu; ekki afrita þau milli notenda án yfirferðar.

Aðrir listar

NA Innskráðir notendur sýnir skráðar innskráningar með notandakenni og auðkenningakerfi. Ein notandafærsla getur átt fleiri en eina innskráningu.

NA Notendasniðmát geymir sniðmát fyrir stofnun notenda og sýnir fjölda hlutverka og réttinda. Nýtt notandasniðmát á NA Auðkenningakerfi velur sniðmát tengda kerfisins. Breyting þar uppfærir ekki eldri notendur.

Uppsetning með hjálp býður upp á skref fyrir samþykktavef og viðskiptavinavef. Óvöldum skrefum er sleppt. Að ljúka leiðsögn kemur ekki í stað þess að yfirfara hlutverk og úthluta lykilorði.