Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Fyrstu skref

Hér byrjar þú þegar þú þarft að gefa notanda aðgang að tengdu vefkerfi. Markmiðið er að stofna eina notandafærslu, tengja hana rétt og úthluta lykilorði.

Yfirlit

Þú þarft Ytri notendur í Business Central og aðgang að notendalista og hlutverkum. Tengda vefkerfið þarf að vera uppsett. Fáðu staðfest hjá kerfisstjóra hvaða hlutverk það notar áður en þú gefur aðgang.

Hvernig þetta virkar

Notandakenni auðkennir ytri notandann. Hlutverk og reiturinn Fyrir hönd... tengja hann við færslu í Business Central. Lykilorði er úthlutað sérstaklega.

Uppsetning í réttri röð

  1. Ákveddu hvort notandinn tengist notandauppsetningu fyrir samþykktavef eða viðskiptamanni.
  2. Stofnaðu notandann og veldu hlutverk.
  3. Settu upp tölvupóst og sniðmát ef senda á lykilorðið í tölvupósti.
  4. Úthlutaðu lykilorði.

Fyrsta verkið

Stofnaðu notandann daemi-vefur hjá Dæmi ehf. Þegar því er lokið sést hann á NA Notendalisti og hlutverkatengingin sést undir Skoða notendahlutverk. Prófaðu síðan innskráningu á tengda vefnum.

Ávinningur

Með því að yfirfara tenginguna áður en lykilorðið er afhent minnkar hættan á að aðgangur sé tengdur við ranga færslu.