Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Stofna og tengja notanda

Þú sem sérð um aðgang skráir ytri notandann í Business Central og velur fyrir hvaða færslu hann kemur fram.

Sviðsmynd

Dæmi ehf. þarf notandann daemi-vefur fyrir tengdan vef. Markmiðið er að tengja hann við eina rétta færslu áður en lykilorðið er afhent.

Áður en þú byrjar

Tengda vefkerfið þarf að vera uppsett og hlutverk þess staðfest. Fyrir samþykktavef þarf viðeigandi notandauppsetningu. Fyrir viðskiptavinavef þarf viðskiptamaðurinn að vera til.

Skref fyrir skref

  1. Opnaðu NA Notendalisti og stofnaðu nýjan notanda.
  2. Fylltu út Notandakenni, Fullt nafn og Tölvupóstfang á NA Notandaspjald.
  3. Veldu Skoða notendahlutverk og bættu við hlutverki.
  4. Veldu hlutverk sem tengda kerfið notar. Í eldri uppsetningu samþykktavefs er það Approver, tengt við töflu 91, og fyrir viðskiptavinavef Customer, tengt við töflu 18. Þessar hlutverkafærslur þurfa að vera til í NA Hlutverkalisti.
  5. Veldu færsluna í Fyrir hönd...: notanda úr notandauppsetningu fyrir samþykktavef eða viðskiptamann fyrir viðskiptavinavef.
  6. Úthlutaðu lykilorði og prófaðu innskráningu.

Afrita eða loka notanda

Afrita notanda biður um nýtt lykilorð og býr til notanda með sömu hlutverkum og réttindum. Nýja notandakennið fær viðbótina (Copy …). Nafn, netfang og aðrar stillingar fylgja ekki með; fylltu þær út og yfirfarðu sérstaklega fyrir hvern notandinn kemur fram.

Merktu Lokaður á spjaldinu til að hafna nýrri innskráningu. Gildistími setur lokadag; nýrri innskráningu er hafnað þegar sá dagur er liðinn. Þegar þarf að ljúka virkri veflotu skal notandinn einnig skrá sig út.

Niðurstaða

daemi-vefur sést á notendalistanum. Undir Skoða notendahlutverk sést valið hlutverk og rétt færsla í Fyrir hönd....

Næst skaltu úthluta notandanum lykilorði.

Ef eitthvað fer úrskeiðis

Ef notandakennið er þegar í notkun skaltu velja annað. Ef innskráning tekst ekki skaltu yfirfara lykilorð, lokun og gildistíma. Sjá Aðstoð.