Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Aðstoð

Leitaðu að skilaboðunum sem birtast þegar þú stofnar notanda eða úthlutar lykilorði. Sum skilaboð birtast á ensku þótt Business Central sé á íslensku.

Notendur

SkilaboðSkýringHvað á að gera
User name "…" is taken. Please choose another.Notandakennið er þegar í notkun.Veldu annað kenni á notandaspjaldinu.
Credentials not authenticatedAuðkenning tókst ekki. Orsökin getur verið rangt lykilorð, lokun eða tímamörk.Yfirfarðu notandakenni, lykilorð, Lokaður, Gildistími og Hámarks tími milli innskráningar.
User System Access for … not foundNotandann vantar aðgangstengingu við tilgreint kerfi.Fáðu kerfisstjóra til að yfirfara tengingu við auðkenningakerfið.
Password must be givenEkkert lykilorð var gefið við afritun.Reyndu aftur og sláðu inn nýtt lykilorð.

Lykilorð og tölvupóstur

SkilaboðSkýringHvað á að gera
The two passwords must matchLykilorðin tvö eru ekki eins.Fylltu báða reiti út með sama lykilorði.
New password couldn't be assigned.Ekki tókst að vista nýja lykilorðið.Opnaðu notandann aftur og reyndu á ný. Hafðu samband við kerfisstjóra ef villan endurtekur sig.
User has no assigned email address.Netfang vantar á notandann.Fylltu út Tölvupóstfang áður en þú sendir lykilorð.
Ekkert sniðmát er til fyrir tölvupóst vegna nýs lykilorðs (NEW-PASS)Sniðmát fyrir nýtt lykilorð vantar.Veldu Nýtt lykilorð í NA Tölvupóstssniðmát og fylltu það út.
Ekkert sniðmát finnst fyrir sniðmát með kóða PASSWORDRECOVERY.Endurheimtarsniðmátið vantar.Veldu Týnt lykilorð í sniðmátinu og fylltu það út.
PASSWORDRECOVERY sniðmát er ekki sett upp rétt.Búkur1 er auður.Skrifaðu texta í reitinn og notaðu %1 fyrir hlekkinn.
Tákn er útrunnið.Endurheimtarhlekkurinn er eldri en einn dagur.Biddu um nýjan hlekk á tengda vefnum.
Token corrupt.Hlekkurinn inniheldur ógilt tákn.Notaðu allan nýjasta hlekkinn úr póstinum eða biddu um nýjan.
User not found with token.Hlekkurinn á ekki lengur við, til dæmis eftir notkun eða nýja beiðni.Biddu um nýjan hlekk.
Password empty.Nýtt lykilorð var ekki gefið við endurheimt.Sláðu inn nýtt lykilorð áður en þú staðfestir.

Vandamál án skilaboða

EinkenniSkýringHvað á að gera
Lykilorðið breytist ekki.Glugganum var lokað án lykilorðs eða hætt var við.Opnaðu aðgerðina aftur og fylltu báða lykilorðsreiti út.
Póstur barst en lykilorðið breyttist ekki.Hætt var við eða reitirnir voru auðir í Úthluta lykilorð og senda það; pósturinn er samt sendur.Endurtaktu aðgerðina með sama lykilorði í báðum reitum.
Póstur berst ekki.Netfang, tölvupóstreikningur eða sending getur verið röng.Athugaðu netfang, ruslpóst og útsenda pósta í Business Central. Yfirfarðu aðstæðuna RdN External Users í uppsetningu.
Enginn endurheimtarpóstur berst.Ekkert samsvarandi notandakenni eða netfang fannst, eða netfang vantar á notandann.Yfirfarðu skráða notandann og netfangið áður en þú biður aftur um hlekk.
Prufupóstur fyrir Týnt lykilorð inniheldur ekki endurheimtarhlekk.Prófunartölvupóstur sendir þá póst úr sniðmátinu Staðfesta notendaumsókn.Prófaðu endurheimt á tengda vefnum. Ef villa segir að sniðmát fyrir staðfestingu notendaumsóknar vanti skaltu fylla út Staðfesta notendaumsókn.
Skref vefkerfis birtist ekki í uppsetningu með hjálp.Viðkomandi notendategund var ekki valin.Farðu til baka og veldu hana.