Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Flytja inn launafærslur

Þegar launauppgjöri í H3 er lokið lestu bókhaldsskrána inn í færslubók í Business Central. Þú ferð yfir niðurstöðuna áður en þú bókar.

Sviðsmynd

Anna er að færa janúarlaun í bókhaldið. H3-skráin inniheldur færslu að upphæð 500.000 kr. með dagsetningunni 31/01/26. Eftir innlestur á línan í færslubókinni að sýna 31. janúar 2026 og 500.000 kr., ásamt reikningi og víddum úr skránni.

Áður en þú byrjar

  • Dagsetningarsnið er stillt fyrir H3-skrána.
  • Bókhaldsskráin úr H3 er tilbúin. Innlesturinn les kommuaðgreinda textaskrá, ekki Excel-vinnubók.
  • Reikningar og víddir skrárinnar eru til í Business Central. Lánardrottnar og viðskiptamenn sem koma fyrir þurfa að hafa greiðsluskilmála sem eru til.

Skref fyrir skref

  1. Opnaðu Færslubækur og veldu keyrsluna sem á að taka við launafærslunum. Notaðu tóma keyrslu ef þú vilt halda öðrum færslum óbreyttum.

  2. Veldu H3 Laun Innlestur og síðan H3-skrána í innflutningsglugganum.

    H3 Laun Innlestur í færslubókinni.

    Velja skrá í innflutningsglugganum.

  3. Ef færslur eru fyrir er spurt hvort eyða eigi þeim. Veldu Já aðeins ef skipta á út öllum línum í valinni keyrslu, líka línum sem komu ekki úr H3. Veldu Nei til að hætta við án þess að eyða þeim.

    Staðfesting áður en eldri færslum í keyrslunni er eytt

  4. Farðu yfir dagsetningar, reikninga, lýsingar, víddir og upphæðir í færslubókinni. Berðu saman við launauppgjörið í H3 og athugaðu að færslurnar stemmi áður en þú bókar.

    Innlesnar launafærslur í færslubók.

  5. Bókaðu með hefðbundinni bókun færslubókar þegar yfirferð er lokið.

Niðurstaða

H3-færslurnar eru komnar sem óbókaðar línur í valda keyrslu eftir innlestur. Bókun gerist aðeins þegar þú bókar sjálf/ur í skrefi 5.

Dagsetning úr skránni verður bæði bókunardagsetning og dagsetning skjals. Tegund L verður lánardrottinn og V viðskiptamaður; aðrar tegundir verða fjárhagsreikningur. Fyrstu tvær víddirnar koma úr skránni og gjalddagi reiknast út frá greiðsluskilmálum. Ef staðbundinn gjaldmiðill er ekki ISK fá línurnar gjaldmiðilinn ISK. Númer fylgiskjals kemur úr númeraröð keyrslunnar ef hún er skilgreind, ekki úr númeri í H3-skránni.

Ef eitthvað fer úrskeiðis

Ekki bóka ef dagsetningar eða upphæðir stemma ekki. Við dagsetningarvillu, villu í stofngögnum eða skilaboðin Hætti við innlestur. skaltu sjá Aðstoð. Ef innlestur stöðvast skaltu skoða innihald keyrslunnar áður en þú reynir aftur.