Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Aðstoð

Ef innlestur H3-launaskrár stöðvast eða færslurnar eru ekki eins og þú bjóst við skaltu finna skilaboðin eða einkennin hér. Ekki bóka fyrr en færslurnar stemma við launauppgjörið.

Innlestur

Í eyðingarspurningunni stendur „…“ fyrir fjölda lína og heiti keyrslu.

SkilaboðSkýringHvað á að gera
Dagsetningarsnið á innfluttu skjali stemmir ekki við H3 Laun stillingarnarDagsetningu í skránni er ekki hægt að lesa með völdu sniði.Opnaðu H3 Uppsetning og samræmdu Dagsetningarsnið við skrána, til dæmis dd/MM/yy fyrir 31/01/26. Skoðaðu innihald keyrslunnar og lestu aftur inn. Sjá Fyrstu skref.
Viltu Eyða … færslum sem voru áður úr bókinni …?Valin keyrsla inniheldur línur. Innlestur bætir ekki nýjum línum við þær.Veldu Já aðeins ef eyða á öllum línum keyrslunnar, annars Nei og veldu tóma keyrslu. Sjá Flytja inn launafærslur.
Hætti við innlestur.Þú svaraðir Nei við eyðingarspurningunni. Innlestur var stöðvaður og línunum ekki eytt.Veldu tóma keyrslu og reyndu aftur ef halda á fyrirliggjandi línum.
Villa um lánardrottin, viðskiptamann, greiðsluskilmála eða vídd sem finnst ekki.Stofngögn skrárinnar vantar eða eru ekki gild í fyrirtækinu. Orðalag fer eftir reitnum.Athugaðu númer og víddargildi í H3-skránni og viðeigandi stofngögn í Business Central. Lagaðu þau, skoðaðu innihald keyrslunnar og reyndu aftur.

Vandamál án skilaboða

EinkenniSkýringHvað á að gera
Dagsetningar lesast inn en eru rangar.Snið getur túlkað dag og mánuð í öfugri röð án villu.Berðu saman við H3-skrána og leiðréttu Dagsetningarsnið. Lestu skrána aftur inn áður en þú bókar.
Upphæð lesst ekki inn eða stemmir ekki.Skráin er ekki á því talnasniði sem innlesturinn getur lesið.Notaðu bókhaldsskrána úr H3, ekki Excel-vinnubók. Fáðu aðstoð hjá Rue de Net ef talnasnið hennar lesst ekki rétt.
Eldri línur hurfu eftir innlestur.Já í eyðingarspurningunni eyðir öllum eldri línum í valinni keyrslu, ekki aðeins H3-línum.Ekki bóka ófullkomna keyrslu. Endurskráðu færslur sem þurfa að vera með og notaðu tóma keyrslu næst.
Uppsetning eða innlestur stöðvast á aðgangsathugun.Aðgangur er athugaður í App Center í framleiðsluumhverfi þegar App Center er uppsett.Biddu kerfisstjóra eða Rue de Net að athuga aðgang fyrirtækisins.