Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Reikningslínur

Neðst í reikningsyfirlitinu er tafla með línum reikningsins.

DálkurLýsing
LýsingLýsing línunnar.
MagnMagn.
EiningaverðVerð á einingu.
SamtalsHeildarupphæð línunnar.

Skoða línu nánar

Smelltu á línu til að opna hana. Þá birtast frekari upplýsingar.

Lína opnuð

ReiturLýsing
UpphæðUpphæð línunnar án virðisaukaskatts.
VSKVirðisaukaskattur línunnar.
TegundTegund línunnar, t.d. VARA eða FJÁRHAGSLYKILL.
Nr.Númer vöru eða fjárhagslykils.
Lýsing (breytileg)Lýsing línunnar sem má breyta.
Samþ. hópurSamþykkjendahópur línunnar, ef línan er í línusamþykkt.
StaðsetningarkóðiStaðsetning vörunnar.
VíddirVíddir línunnar með heitum úr Business Central.

Smelltu aftur á línuna til að loka henni.

Breyta línu

Ef þú mátt breyta línunni birtast blýantshnappar við Nr., Lýsing (breytileg) og víddargildin.

  1. Smelltu á blýantinn.
  2. Veldu nýtt gildi eða skrifaðu nýja lýsingu (mest 100 stafir).
  3. Breytingin er vistuð strax í Business Central.

Athugið

Hvenær má breyta? Aðeins er hægt að breyta línu sem er ekki þegar samþykkt eða útgefin, og þar sem þú ert samþykkjandi línunnar (eða reikningsins ef línan er ekki með sérstakan samþykkjendahóp).

Línusamþykktir

Samþykktakerfi Rue de Net getur sent einstakar línur reiknings í samþykkt í stað reikningsins alls. Þetta er gagnlegt þegar mismunandi deildir bera ábyrgð á ólíkum liðum sama reiknings.

Ef einhver lína reikningsins bíður þinnar samþykktar birtist aðgerðastika fyrir ofan línutöfluna:

HnappurLýsing
GátreiturVelur allar línur sem þú mátt afgreiða.
Samþykkja valiðSamþykkir valdar línur.
Hafna völdumHafnar völdum línum.

Merktu við gátreitinn framan við hverja línu sem þú vilt afgreiða og smelltu á viðeigandi hnapp. Samþykktar línur eru merktar sérstaklega í töflunni.

Sjá einnig Línusamþykktir í leiðbeiningum Samþykktakerfisins.

Ef aðgerð á línu mistekst

SkilaboðSkýring
Villa við aðgerð á línuBusiness Central hafnaði samþykkt eða höfnun línunnar.
Villa við að uppfæra línuEkki tókst að vista breytinguna á línunni.
Villa við að uppfæra víddEkki tókst að vista nýtt víddargildi.